02. apr. 2025Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar, Evrópusamvinna, Schengen-samstarfið, Almannavarnir
Óformlegur fundur innanríkismálaráðherra í Varsjá
Óformlegur fundur innanríkismálaráðherra ESB fór fram í Varsjá 30. janúar 2025. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, sótti fundinn fyrir Íslands hönd sem Schengen samstarfsríki (e. Schengen Associated Country). Á dagskrá voru málefni flótta- og farandfólks, almannavarnir og innra öryggi Evrópu.