Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 401–450 af 574
    Raða eftir:
    17. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Frestun Jafnréttisþings

    Jafnréttisþingi sem vera átti 24. okt. nk. er frestað fram á næsta ár.

    16. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Heimaspítali á Suðurlandi: Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk

    Rekstur heimaspítala er nýjung í rekstri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) sem felst í aukinni heilbrigðisþjónustu, þar með talinni læknisþjónustu, við fólk sem býr heima og þarfnast meiri stuðnings en almennrar félagsþjónustu og heimahjúkrunar. Heilbrigðisráðuneytið hefur gert samkomulag við stofnunina um stuðning við verkefnið. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Díana Óskarsdóttir forstjóri HSU undirrituðu samkomulagið í gær.

    16. okt. 2024Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Mannréttindi, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ísland sat fyrir svörum á fundi Mannréttindanefndar SÞ

    Sjötta skýrsla Íslands um samninginn borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi var tekin fyrir á fundi Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í Genf 15. og 16. október 2024. Í skýrslunni er fjallað um hvernig Ísland hefur uppfyllt skyldur sínar samkvæmt samningnum og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í því skyni að uppfylla tilmæli nefndarinnar um nauðsynlegar úrbætur.

    15. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Samningur Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og Húnaþings vestra undirritaður

    Húnaþing vestra og Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) hafa undirritað samning um rekstur samhæfðrar þjónustu fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu. Samningurinn, sem tekur gildi 1. janúar 2025, er byggður á aðgerðaáætlun stjórnvalda, "Gott að eldast", sem samþykkt var á Alþingi þann 10. maí 2023.

    15. okt. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Skipað í embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags og vinnumarkaðsráðherra hefur ákveðið að skipa Mörthu Lilju Olsen framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Umsækjendur um embættið voru sex talsins. Að loknu heildarmati var það niðurstaða ráðherra að Martha Lilja Olsen félli best að þeirri lýsingu sem kæmi fram í auglýsingu og væri hæfust umsækjenda til að gegna embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu.

    15. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Vinnumál

    Jafnréttisþing 2024: Staða fatlaðra kvenna á vinnumarkaði

    Jafnréttisþing fer fram þann 24. október nk. og umfjöllunarefni þingsins er að þessu sinni aðgengi, möguleikar og hindranir fatlaðra kvenna á íslenskum vinnumarkaði. Skráning á þingið er í fullum gangi og er aðgangur ókeypis.

    12. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    25 milljónir króna til hjálparsamtaka

    Bjarni Benediktsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt samtals 25 milljónum króna til hjálparsamtaka um land allt sem styðja við viðkvæma hópa sem leita þurfa aðstoðar í aðdraganda jólanna, svo sem með mataraðstoð.

    10. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Ert þú með góða hugmynd um hvernig breyta megi og bæta þjónustu við fatlað fólk og/eða auka hagkvæmni hennar?

    Framtíðarhópur vinnur nú að þróun og nýsköpun í þjónustu við fatlað fólk. Markmiðið er að auka gæði þjónustunnar og hagkvæmni hennar. Í framtíðarhópnum sitja fulltrúar frá ríkinu, sveitarfélögum og hagsmunasamtökum fatlaðs fólks. Hópurinn á að ráðast í fjölbreytta greiningarvinnu og tilraunaverkefni – og hann vill vita hvort þú hafir góða hugmynd sem þú vilt koma áleiðis!

    10. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Styrkir til verkefna til stuðnings við þolendur og gerendur ofbeldis

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem miða að því að tryggja þolendum og gerendum ofbeldis aðgengi að stuðningi og ráðgjöf. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að bregðast við afleiðingum Covid-19 faraldursins.

    09. okt. 2024Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Skýrsla Íslands um samning SÞ um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi tekin fyrir í Genf

    Fimmta skýrsla Íslands um samninginn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi (CESCR) var tekin fyrir á fundi nefndar Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi í Genf 9. og 10. september.

    04. okt. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Samgöngur, Sveitarstjórnir og byggðamál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Svandís Svavarsdóttir tekur við lyklavöldum í innviðaráðuneytinu

    Svandís Svavarsdóttir tók í dag við lyklavöldum í innviðaráðuneytinu.

    27. sep. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna og starfsemi sem heyrir undir málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til 28. október 2024 kl. 13:00.

    27. sep. 2024Dómsmálaráðuneytið, Fatlað fólk, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Áform um lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

    Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda áform um að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í heild sinni. Tilvist sjálfstæðrar mannréttindastofnunar hefur verið talin forsenda þess að hægt sé að lögfesta SRFF, þar sem samningurinn leggur þá skyldu á aðildarríki að slík stofnun sé til staðar. Í ljósi þess að lög um Mannréttindastofnun Íslands voru samþykkt á Alþingi í júní sl. er fyrirhugað að lögfesta samninginn í heild sinni.

    26. sep. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Skipulagsmál, Innviðaráðuneytið

    Frumvarp um breytingu á lögum um haf- og strandsvæði í samráðsgátt

    Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar.

    25. sep. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur

    Drög að stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur lagt fram til samráðs stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hyggst leggja fram sem tillögu til þingsályktunar á haustþingi. Stefnan er til fimmtán ára og var áður birt í hvítbók en framkvæmdaáætlunin er til fjögurra ára.

    25. sep. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Lagt til að foreldrum sem missa maka sinn verði tryggður réttur til sorgarleyfis

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi þar sem lagt er til að foreldrum sem missa maka sinn sé tryggður réttur til sorgarleyfis. Frumvarpinu er ætlað að styrkja enn frekar stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum.

    24. sep. 2024Dómsmálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir

    Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir í dag, þriðjudaginn 24. september kl. 13:00-16:30. Málþinginu er ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verður velt upp. Fjallað verður um hvernig skimunum er háttað í dag, ávinning þeirra, áhættu og um þau sjónarmið sem huga þarf að þegar metið er hvort og þá hvaða fósturskimanir heilbrigðisyfirvöld eigi að bjóða.

    24. sep. 2024Rit og skýrslur, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Félags- og fjölskyldumál

    Kostnaðar- og ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk - áfangaskýrsla II

    september 2024 / Félags- og húsnæðismálaráðuneytið Kostnaðar- og ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk - áfangaskýrsla II Kostnaðar- og ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk - áfangaskýrsla II Til baka

    23. sep. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Ársskýrsla kærunefndar jafnréttismála 2023 komin út

    Ársskýrsla kærunefndar jafnréttismála 2023 er komin út og hefur verið birt á vefnum. Kristín Benediktsdóttir, formaður kærunefndar jafnréttismála, afhenti Guðmundi Inga Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, skýrsluna fyrir helgi og kynnti hana fyrir honum. Skýrslunni er skilað til ráðherra í samræmi við lög um stjórnsýslu jafnréttismála og í henni er farið yfir starfsemi nefndarinnar, málafjölda og niðurstöður, málsmeðferðartíma og aðrar tölfræðiupplýsingar vegna ársins 2023.

    19. sep. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Guðmundur Ingi afhenti norræn verðlaun til frumkvöðla á sviði samfélagsmála

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, afhenti í dag verðlaunin Nordic Pioneer Prize í Kaupmannahöfn. Þau eru árlega veitt 18-25 ára eldhugum og frumkvöðlum á Norðurlöndunum sem hafa með hugrekki og frumkvæði leitast við að auka öryggi og samheldni í nærsamfélagi sínu með því að takast á við skautun, hatur og félagslega útskúfun.

    18. sep. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Fullur salur á Haustdegi Gott að eldast

    Haustdagur Gott að eldast fór fram á dögunum en þar kom saman fólk héðan og þaðan af landinu sem tekur þátt í þróunarverkefnum um samþætta heimaþjónustu. Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög voru í fyrra valin til þátttöku í verkefnunum og á haustdeginum hittist fólk af öllum svæðunum í fyrsta skipti.

    18. sep. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Málþing um fóstur- og nýburaskimanir þriðjudaginn 24. september

    Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir þriðjudaginn 24. september nk. Málþinginu er ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verður velt upp. Fjallað verður um hvernig skimunum er háttað í dag, ávinning þeirra, áhættu og um þau sjónarmið sem huga þarf að þegar metið er hvort og þá hvaða fósturskimanir heilbrigðisyfirvöld eigi að bjóða. Þingið verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl. 13.00-16.30. Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.

    10. sep. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Mælti fyrir tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025–2028

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, mælti í dag fyrir tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025–2028 á Alþingi. Tillagan felur í sér viðamikla áætlun sem samanstendur af 44 verkefnum. Þau eru öll tengd við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og er ætlað að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna í íslensku samfélagi. Með tillögunni fylgir skýrsla um stöðu og þróun jafnréttismála 2020–2024.

    10. sep. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Skýrsla ráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2020-2024 komin út

    Skýrsla ráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2020-2024 er komin út en ráðherra jafnréttismála skal gefa út slíka skýrslu einu sinni á kjörtímabili. Skýrslan fylgir með tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum 2025-2028 sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, mælti fyrir á Alþingi í dag.

    10. sep. 2024Skipulagsmál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Hugað að mikilvægi ljósvistar í drögum að nýjum kafla í byggingarreglugerð

    Björt og vel upplýst híbýli fólks og aðgengi að birtu og sólarljósi í nærumhverfinu eru afar mikilvæg lýðheilsumál fyrir samfélagið.

    09. sep. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Starfshópur um málefni einhverfra fullorðinna tekur til starfa

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur skipað starfshóp um málefni einhverfra fullorðinna einstaklinga. Honum er ætlað að greina þá þjónustu sem einhverfu fullorðnu fólki stendur til boða í dag og hvernig unnt er að koma betur til móts við þarfir þeirra.

    04. sep. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Starfshópur um einn feril húsnæðisuppbyggingar

    Innviðaráðherra hefur skipað starfshóp um einn feril húsnæðisuppbyggingar.

    30. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Réttarstaða leigjenda bætt við breytingar á húsaleigulögum sem taka gildi 1. september

    Um næstu mánaðamót taka gildi breytingar á húsaleigulögum sem Alþingi samþykkti í júní. Markmið breytinganna er að bæta réttarstöðu leigjenda og auka húsnæðisöryggi.

    28. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Stefnt að því að samræma greiðslur almannatrygginga við greiðslur annarra opinberra kerfa

    Fyrsti fundur starfshóps um eftirágreiðslur almannatrygginga var haldinn í morgun í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Hlutverk starfshópsins er að skoða og útfæra leiðir til að breyta núverandi greiðslufyrirkomulagi almannatrygginga. Almannatryggingar eru til dæmis örorkulífeyrir og breytingarnar til þess fallnar að auka samræmi og einfalda kerfið fyrir notendur þess.

    20. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Uppfærðar leiðbeiningar um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda

    Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur uppfært leiðbeiningar ráðherra til sveitarfélaga um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda. Breytingarnar eru til komnar vegna breytinga á lögum um húsnæðisbætur sem Alþingi samþykkti í júní sl. og tengjast aðgerðum stjórnvalda til stuðnings fjögurra ára kjarasamningum.

    19. ágú. 2024Dómsmálaráðuneytið, Aðgerðir gegn mansali, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Aukinn stuðningur við Bjarkarhlíð vegna mansalsverkefna

    Bjarkarhlíð hefur hlotið 28 milljóna króna styrk til þess að sinna verkefnum tengdum mansali.

    16. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Samningur undirritaður um samþætta heimaþjónustu í Vesturbyggð

    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Vesturbyggð hafa gert með sér samning um rekstur samþættrar heimaþjónustu í sveitarfélaginu. Samningurinn er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda; Gott að eldast, sem felur í sér heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk með áherslu á að þjónusta sé veitt þegar hennar er þörf, á forsendum fólksins sjálfs og á réttu þjónustustigi.

    06. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    RÚV Orð styður innflytjendur í íslenskunámi

    Íslensk stjórnvöld halda áfram að auka aðgengi að fjölbreyttu og einstaklingsmiðuðu íslenskunámi sem stunda má hvar og hvenær sem er. RÚV Orð er nýr vefur fyrir sjálfsnám í íslensku með notkun sjónvarpsefnis frá RÚV. Vonir standa til þess að persónuleg nálgun hvetji innflytjendur til að læra íslensku á sinn hátt og út frá sínu áhugasviði.

    03. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Flóttafólk

    72 einstaklingar frá Gaza komu til landsins í dag

    72 dvalarleyfishafar frá Gaza komu til landsins í dag, þar af voru 24 fullorðnir og 48 börn. Ferðin frá Egyptalandi gekk vel og tók starfsfólk frá Vinnumálastofnun, Rauða krossinum og Reykjavíkurborg á móti fólkinu á Keflavíkurflugvelli og aðstoðaði hópinn í gegnum völlinn.

    24. júl. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Samgöngur, Skipulagsmál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Þrettán umsækjendur um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins

    Þrettán umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins sem auglýst var um miðjan júní sl.

    18. júl. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála laust til umsóknar

    Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála hefur verið auglýst laust til umsóknar.

    03. júl. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innflytjendur

    17 verkefni fengu styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála – áhersla lögð á lýðræðislega þátttöku og baráttu gegn fordómum og mismunun

    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, tilkynnti í dag hver hljóta styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2023. Félags- og hagsmunasamtök innflytjenda voru sérstaklega hvött til þess að sækja um.

    03. júl. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Mælt fyrir breytingum á húsaleigulögum til að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda

    Innviðaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um breytingar á húsaleigulögum með það að markmiði að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda.

    28. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Miðstöð í öldrunarfræðum komið á fót

    Nýrri Miðstöð í öldrunarfræðum hefur verið komið á fót. Henni er ætlað að efla nýsköpun og þróun þjónustu við eldra fólk, meðal annars með því að safnað verði á einum stað saman upplýsingum um stöðu eldra fólks hér á landi.

    26. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Innviðaráðuneytið

    Réttarstaða leigjenda bætt með nýsamþykktum breytingum á húsaleigulögum

    Alþingi samþykkti um síðustu helgi frumvarp Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra um breytingar á húsaleigulögum.

    26. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Lengri opnunartími símaþjónustu hjá Réttindagæslu fyrir fatlað fólk

    Opnunartími símaþjónustu hjá Réttindagæslu fyrir fatlað fólk hefur verið lengdur og er nú frá 9:00-16:00 alla virka daga. Símanúmerið er 554 8100. Öll mál sem berast símleiðis fara í ferli, er forgangsraðað og réttindagæslumaður hefur síðan samband til baka.

    24. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Vinnumál, Fatlað fólk, Almannatryggingar og lífeyrir

    Fjögur frumvörp félags- og vinnumarkaðsráðherra urðu að lögum um helgina

    Fjögur frumvörp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, urðu að lögum um helgina. Um er að ræða frumvarp vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði, frumvarp um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, frumvarp um breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi, auk frumvarps vegna breytinga á örorkulífeyriskerfinu.

    24. jún. 2024Dómsmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Fyrstu alþjóðlegu jafnréttisverðlaunin til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur afhent í dag

    Grísku grasrótarsamtökin Irida Women‘s Center hlutu í dag ný alþjóðleg jafnréttisverðlun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur, Vigdís Prize for Women‘s Empowerment, sem afhent voru í fyrsta sinn á vettvangi Evrópuráðsins að viðstöddum Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands og Guðmundi Inga Guðbrandssyni félags- og vinnumarkaðsráðherra.

    22. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Öll með: Frumvarp um breytingar á örorkulífeyriskerfinu samþykkt á Alþingi

    Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um einfaldara og réttlátara örorkulífeyriskerfi. Ráðherra kynnti breytingarnar í apríl undir yfirskriftinni „Öll með“. Breytingarnar fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi.

    20. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ný skýrsla kjaratölfræðinefndar

    Út er komin vorskýrsla kjaratölfræðinefndar 2024. Í skýrslunni er áhersla lögð á umfjöllun um launaþróun eftir mörkuðum og heildarsamtökum í nýliðinni kjaralotu sem náði til tímabilsins frá nóvember 2022 til janúar 2024 auk umfjöllunar um launastig á árinu 2023, kjarasamninga, efnahagsmál og sérkenni íslensks vinnumarkaðar.

    19. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Norrænt samstarf

    Afnám stjórnsýsluhindrana til umræðu á sumarfundi samstarfsráðherra Norðurlanda í Malmö

    Sumarfundur samstarfsráðherra Norðurlanda fór fram í Malmö í Svíþjóð í dag. Áhersla fundarins var afnám stjórnsýsluhindrana. Svíþjóð hefur í formennsku sinni lagt áherslu á að stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum verði leystar til að auka hreyfanleika íbúa og fyrirtækja.

    12. jún. 2024Húsnæðis- og mannvirkjamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Skýrsla birt um einn feril húsnæðisuppbyggingar

    Starfshópur innviðaráðherra um einn feril húsnæðisuppbyggingar hefur lokið störfum og skilað skýrslu með tillögum að umbótum varðandi skilvirkari húsnæðisuppbyggingu.

    10. jún. 2024Húsnæðis- og mannvirkjamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Birtan í híbýlum fólks - kynningarfundur um ljósvist

    Innviðaráðuneytið boðar til opins fundar um ljósvist miðvikudaginn 9. október nk. kl. 12.

    09. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk

    Réttindagæsla fyrir fatlað fólk hluti af nýrri Mannréttindastofnun um áramót

    Réttindagæsla fyrir fatlað fólk verður hluti af nýrri Mannréttindastofnun sem formlega tekur til starfa þann 1. janúar 2025. Alþingi samþykkti í júní sl. frumvarp forsætisráðherra um stofnun Mannréttindastofnunar og verður stjórn stofnunarinnar kosin eftir að þing kemur saman síðar í mánuðinum.

    31. maí 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Vinna formlega hafin við að þróa gæðaviðmið í félagsþjónustu

    Vinna við að þróa gæðaviðmið í félagsþjónustu hófst formlega á vinnustofu á vegum Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) í dag. Vinnustofuna sóttu þátttakendur víða af á landinu. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið veitti GEV sérstakt fjármagn fyrr á árinu vegna gæðaviðmiðanna og verða þau unnin á grundvelli bestu mögulegrar þekkingar og í samvinnu við hagaðila.

    • First
    • Prev
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband