Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 401–450 af 552
    Raða eftir:
    17. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þjóðhátíðarræða menningar- og viðskiptaráðherra á Hrafnseyri 17. júní 2024

    Menningar – og viðskiptaráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir setti þjóðhátíð á Hrafnseyri í dag með hátíðarræðu. Mikil hátíðarbragur er á Hrafnseyri í dag, fæðingarstaðs Jóns Sigurðssonar forseta en þar er að finna Menningarsetur um ævi og störf Jóns og kaffihús sem mun bjóða fólki fæddu 1944 upp á lýðveldistertu í tilefni að 80 ára afmæli lýðveldisins auk þess sem fjölbreytt dagskrá verður í boði.

    16. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sjóðurinn Gjöf Jóns Sigurðssonar - opið fyrir umsóknir til 1. sept.

    Í reglum frá árinu 1881 um Gjöf Jóns Sigurðssonar er kveðið á um að fé úr sjóðnum megi veita, „1. til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit, til að styrkja útgáfur slíkra rita annars kostar og til þess að styrkja útgáfur merkilegra heimildarrita“

    14. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Heimilisiðnaðarfélag Íslands viðurkennt hjá UNESCO

    Tæplega 300 félagasamtök víða um heim eru viðurkennd hjá UNESCO en Heimilisiðnaðarfélagið er fyrsta íslenska félagið sem hlýtur slíka viðurkenningu. Félagið var stofnað árið 1913 og hefur í yfir 110 ára sögu sinni stuðlað að varðveislu hefðbundinnar handverkskunnáttu sem almennt var stunduð á heimilum landsins. Félagið stendur árlega fyrir fjölda vel sóttra námskeiða þar sem t.d. er kenndur þjóðbúningasaumur, tóvinna, útsaumur og vefnaður. Félagsmenn eru um 850 talsins.

    14. jún. 2024Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum - Ítarlegri kortlagning aðgerða og ávinnings en áður

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra kynntu uppfærða útgáfu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum í dag.

    14. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Evrópusamvinna, Háskólar

    Íslensk sendinefnd á fundi Evrópska háskólasvæðisins

    Íslendingar áttu sína fulltrúa á ráðherrafundi EHEA í Tirana á dögunum.

    14. jún. 2024Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Forsætisráðuneytið

    Kynning á uppfærðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum

    Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, kynna uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og nýjan vef aðgerðaáætlunarinnar föstudaginn 14. júní kl. 14.

    14. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Gervigreind, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Meiriháttar framfarir í íslenskufærni mállíkana

    Íslenskan hefur aldrei staðið eins vel í nýrri tækni og hún gerir í dag. Þetta sýnir samanburður á frammistöðu tveggja helstu mállíkana heims í íslensku. Samstarf menningar- og viðskiptaráðuneytisins og máltæknifyrirtækisins Miðeindar við bandaríska tæknifyrirtækið OpenAI hefur skilað mælanlegum árangri og margfalt betri íslenskufærni vinsælasta mállíkans heims.

    13. jún. 2024Evrópusamvinna, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þátttaka Íslands í Erasmus+ og European Solidarity Corps áhrifarík fyrir íslenskt samfélag

    Ný úttekt á árangri Erasmus+ og European Solidarity Corps (ESC) á Íslandi sýnir fram á jákvæð áhrif áætlananna á íslenskt menntakerfi og æskulýðsstarf. Umsóknarferlið mætti einfalda en þjónusta Landskrifstofu veitir umsækjendum og styrkhöfum mikilvægan stuðning.

    13. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þjóðarópera verður að veruleika

    „Fram hefur komið í fjölmiðlum að Þjóðarópera sé úti í kuldanum. Svo er alls ekki. Við höldum ótrauð áfram að berjast fyrir stofnun Þjóðaróperu og undirbúningur hennar er kominn á fulla ferð með Þjóðleikhúsinu,”segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og bætir við: „Það er útilokað að gefast upp í þessari fögru vegferð. Með þessu frumvarpi er stigið mikilvægt skref í átt að aukinni samlegð sviðslista á Íslandi á 21. öld með jafnræði Þjóðleikhúss, Þjóðaróperu og Íslenska dansflokksins, auk samstarfssamnings við Sinfóníuhljómsveit Íslands.“

    11. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Gervigreind

    Áslaug Arna kynnir nýja aðgerðaáætlun um gervigreind

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra gervigreindar, kynnir nýja aðgerðaáætlun Íslands um gervigreind á morgun, fimmtudaginn 7. nóvember kl. 11:00. Viðburðurinn fer fram í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu við Reykjastræti 6.

    09. jún. 2024Innviðaráðuneytið, Nýsköpun, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fjarskiptastrengir og gagnaver á teikniborðinu

    Fyrirhuguð áform fela meðal annars í sér lagningu fjarskiptasæstrengja sem myndu efla tengingar milli Íslands, Norður-Ameríku og Evrópu.

    06. jún. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Alvarleg staða drengja í menntakerfinu

    Víðtæk greining á stöðu drengja í íslenska menntakerfinu sýnir alvarlega stöðu sem bregðast þarf við. Þetta er niðurstaða skýrslu sem Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynntu á blaðamannafundi í dag. Í skýrslunni er farið yfir helstu áhrifaþætti og lagðar fram tillögur til úrbóta.

    05. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, OECD, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Áslaug Arna ræddi gervigreind á ráðherrafundi OECD

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra, sótti í liðinni viku ráðherrafund OECD um vísindi og tækni og fjallaði þar um nýlegar breytingar á stefnumörkun vísinda- og tæknimála á Íslandi.

    03. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Lagt til að auglýsingasala RÚV verði stafræn

    Leið þrjú, svokölluð stafræn leið, gerir ráð fyrir að hefðbundin sala og markaðssetning á auglýsingum hjá Ríkisútvarpinu verði óheimil en auglýsingahólf séu þess í stað seld á vefnum.

    03. jún. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aðgerðir í þágu öflugri fjölmiðla: Fjölmiðlastefna til 2030 birt í samráðsgátt

    „Í fjölmiðlastefnunni birtast skýr áform stjórnvalda um að efla rekstur innlendra fjölmiðla og bæta starfsumhverfi fjölmiðlafólks. Fjölmiðlastefnan endurspeglar mikilvægi faglegra fjölmiðla fyrir íslenskt samfélag og lýðræði. Það er tímabært að málefni fjölmiðla í víðu samhengi verði sett á dagskrá í íslensku samfélagi og að stjórnvöld leggi sitt af mörkum til styðja við starfsemi þeirra. Ég er þess fullviss að með meginmarkmið stefnunnar að leiðarljósi náum við að efla öfluga, íslenska fjölmiðlun til framtíðar,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    30. maí 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fjarskiptaöryggi sjófarenda eflt

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur gert breytingar á reglugerð nr. 53/2000 um fjarskiptabúnað og fjarskipti íslenskra skipa.

    29. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Mælt fyrir nýrri ferðamálastefnu: Skýr framtíðarsýn lykilatvinnugreinar

    „Þessi stefna er okkar áttaviti fyrir eina af lykilatvinnugreinum landsins. Hér er skýr framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu lögð fram með vel skilgreindum og markvissum aðgerðum til að treysta undirstöður greinarinnar og tryggja sjálfbærni hennar og stöðugleika til lengri tíma,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra. ​

    28. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úthlutun úr bókasafnasjóði 2024: Glæpafár og útgáfuskrá meðal verkefna

    Úthlutun úr bókasafnasjóði 2024 fór fram í Safnahúsinu í gær. Sjóðnum bárust samtals 20 umsóknir frá 11 bókasöfnum og sótt var um tæplega 37 milljónir. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menninga- og viðskiptaráðherra samþykkti tillögu bókasafnaráðs um styrkúthlutun til 12 verkefna en til úthlutunar voru 20 milljónir.

    27. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Barnamenningarsjóður styrkir 41 verkefni: Kraftmikið menningarár í vændum

    „Það er blómlegt fram undan í barnamenningu og gleður mig ósegjanlega mikið að sjá hversu margar umsóknir bárust. Það segir okkur að efling ungra listhuga er eftirsóknarvert viðfangsefni hjá listafólkinu okkar sem lýsir metnaði fyrir skapandi framtíð landsins og það mun skila sér margfalt til baka til okkar allra. Því langar mig að þakka öllum þeim er sóttu um, fyrir hugmyndirnar og kraftinn því, það er ekki alltaf auðsótt að koma hugmyndum í framkvæmd og það krefst eldmóðs sem er svo sannarlega til staðar hér,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

    27. maí 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hert á öryggi fjarskipta

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt drög að nýrri reglugerð um öryggi fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónustu. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla sem best að áfallaþoli og samfelldri öruggri virkni fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónustu, svo og vernd fjarskiptaumferðar.

    24. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Aukin tækifæri til hagnýtingar opinberra upplýsinga með breyttum lögum

    Breytingar á lögum um endurnot opinberra upplýsinga hafa verið samþykktar á Alþingi. Með breytingum eru lögin sett í takt við stafræna tækni nútímans og eflingu stafrænnar nýsköpunar, ekki síst þegar kemur að gervigreind.

    23. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    97% þykir vænt um íslenskuna: Niðurstöður viðhorfskönnunar

    Niðurstöður spurningakönnunar um viðhorf til íslensku benda til þess að fólk sé almennt mjög jákvætt í garð tungumálsins, hafi mikla trú á eigin getu í íslensku en vilji jafnframt bæta færni sína. Viðhorf svarenda reyndist fremur jafnt þegar horft er til aldurs, menntunar, búsetu og tekna.

    22. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Endurnýjaðir samningar um rekstur Fab Lab smiðja á Íslandi

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt fleirum, undirrituðu í gær nýjan samning um Fab Lab Reykjavík. Samningurinn gildir til þriggja ára og er sameiginlegur með ráðuneytunum og Reykjavíkurborg. Undirritun þessa samnings er sú fyrsta í röðinni í því ferli að endurnýja samninga við alls 11 Fab Lab smiðjur víðs vegar um landið.

    21. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samráðsgátt: Frumvarp um menningarframlag streymisveitna

    Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði ný skylda innlendra og erlendra streymisveitna til að greiða svokallað „menningarframlag“ til íslensks samfélags. Frumvarpið er á meðal þess sem lagt er til í nýrri skýrslu starfshóps um gjaldtöku á streymisveitur og tæknifyrirtæki.

    21. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum sameinast um háskólasamstæðu

    Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum hafa komið sér saman um grunnatriði stjórnskipulags háskólasamstæðu. Um er að ræða stórt skref í átt að sameiningu skólanna tveggja í háskólasamstæðuna, sem fýsileikagreining gaf til kynna að yrði farsælt skref.

    17. maí 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Öllum tryggð örugg fjarskipti

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, í samstarfi við Fjarskiptastofu, hyggst ráðast í átak til að bæta fjarskiptasamband á um 100 stöðum á landinu. Um er að ræða lögheimili og vinnustaði víða um land; ekki síst á Vestfjörðum, Suðurlandi og Norðurlandi.

    17. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Atvinnuvegir

    Skapa.is - upplýsingasíða og nýsköpunargátt fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki

    Ný og endurbætt Skapa.is er komin í loftið. Um er að ræða nýsköpunargátt, upplýsingaveitu og fræðsluvef fyrir frumkvöðla og aðra aðila sem eru að stíga sín fyrstu skref í nýsköpunarumhverfinu.

    16. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skóflur á loft í tilefni 150 ára afmæli Einars Jónssonar

    „Ég óska okkur öllum til hamingju með 150 ára afmæli Einars Jónssonar og megi töfrar verka hans opna okkur sýn í huliðsheima um ókomna tíð,“ var meðal þess sem menningar- og viðskiptaráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir sagði í hátíðarávarpi sínu í Listasafni Einars Jónssonar síðast liðin laugardag þegar 150 ár voru liðin frá fæðingu listamannsins.

    15. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Atvinnuvegir

    Áslaug Arna kynnti árangur af nýsköpun í stjórnkerfinu

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti í dag þær kerfisbreytingar sem hafa átt sér stað með nýju verklagi ráðuneytis hennar. Kynningin fór fram sem liður í Nýsköpunarvikunni sem nú stendur yfir. Húsfyllir var í Kolaportinu og hlýddu gestir úr opinberri stjórnsýslu, fyrirtækjum og nýsköpunargeiranum á erindi Áslaugar sem bar heitið HVIN-verklagið og breytingarnar.

    15. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Norrænt samstarf

    Efling norðurlandamála með nýrri norrænni tungumálastefnu

    Yfirlýsing um norræna tungumálastefnu var undirrituð í Stokkhólmi á dögunum. Yfirlýsingin tekur til nútímaáskorana á borð við stafræna- og hnattvæðingu og hefur það að markmiði að stuðla að sterkari samheldni norrænna tungumála.

    14. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Menningarsamningur við Akureyrarbæ undirritaður

    „Það er gríðarlega mikilvægt að hafa öflugt menningarstarf á landsbyggðinni og að nýta tækifærið til að tengja þessa atvinnustarfsemi betur við opinbera stefnumótun í viðkomandi málaflokkum. Með auknum fjölda ferðamanna hefur ásókn í listasöfn og listviðburði aukist og sannast enn á ný að menning og viðskipti fara svo listalega vel saman,“ segir ráðherra.

    13. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Taktu stökkið!

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur farið af stað með átaksverkefnið Taktu stökkið. Markmið þess er að fjölga háskólanemum, ekki síst strákum, en rannsóknir sýna að umtalsvert færri útskrifast úr háskólum hér á landi en á öðrum Norðurlöndum.

    12. maí 2024Innviðaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Netöryggi, Nýsköpun, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Markmið og árangur aðgerða aðgengileg í mælaborði HVIN

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt nýtt mælaborð á vef ráðuneytisins. Í mælaborðinu má sjá myndræna og lifandi framsetningu á stöðu margvíslegra mælikvarða sem stuðst er við í fjármálaáætlun til að leggja mat á árangur ráðuneytisins.

    12. maí 2024Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úthlutun listamannalauna 2025

    Úthlutunarnefndir Launasjóða listamanna hafa lokið störfum vegna úthlutunar listamannalauna árið 2025.

    09. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hraunmyndanir framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025

    Verkefni s.ap arkitekta, Hraunmyndanir hefur verið valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025. Alls bárust tólf tillögur að sýningu í opnu kalli sem auglýst var í lok apríl af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Fjórar tillögur voru valdar til frekari kynninga fyrir stýrihóp verkefnisins sem sá um að valið. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr með opnu kalli.

    07. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Öll þingmál HVIN höfðu jákvæð áhrif á efnahagslífið

    Greining Viðskiptaráðs Íslands á efnahagslegum áhrifum þingmála á nýafstöðnum þingvetri leiðir í ljós að þingmál Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skiluðu íslensku efnahagslífi mestum ávinningi.

    06. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Landsbyggðin, Atvinnuvegir

    Úthlutun úr Lóu - styrkjum til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni 2024

    Tilkynnt hefur verið um úthlutanir úr Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Í ár hljóta 27 verkefni styrk alls fyrir tæplega 139 milljónir króna.

    06. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins

    Andri Steinn Hilmarsson aðstoðar Áslaugu Örnu tímabundið

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðið Andra Stein Hilmarsson sem tímabundinn aðstoðarmann sinn í stað Eydísar Örnu Líndal, sem er í fæðingarorlofi. Andri Steinn starfar sem aðstoðarmaður samhliða Áslaugu Huldu Jónsdóttur.

    04. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kvikmyndaráðstefna í Hörpu - OLSBERG SKÝRSLAN

    Á föstudaginn stóð menningar- og viðskiptaráðuneytið fyrir Kvikmyndaráðstefnu í Hörpu undir yfirskriftinni Aukum verðmætasköpun í Kvikmyndagerð á Íslandi til framtíðar.

    04. maí 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Menningarborg Evrópu 2030 – opið fyrir umsóknir

    Sigurvegarar Menningarborgar Evrópu eiga möguleika á að hljóta Melina Mercouri verðlaunin, að upphæð 1,5 m. EUR.

    30. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Drög að stefnu í neytendamálum í samráðsgátt: Níu skilgreindar aðgerðir

    „Mikil vinna hefur átt sér stað innan menningar- og viðskiptaráðuneytisins á undanförnum til þess að undirbyggja raunverulegar aðgerðir í þágu neytenda. Aðgerðir sem við viljum koma í verk sem fyrst og til framtíðar. Ég er sannfærð um að þær aðgerðir sem ný neytendastefna telur fram muni bæta samfélagið okkar og neytendavernd í þágu okkar allra. Sterk neytendakennd hefur sjaldnast verið mikilvægari – burt séð frá því hvoru megin við borði er staðið. Skýr löggjöf og regluverk er þar lykill,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

    30. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tónlistarmiðstöð opnar fyrir styrkjaumsóknir úr Tónlistarsjóði - opin kynning fyrir áhugasama

    Tónlistarmiðstöð auglýsir eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar úr nýjum Tónlistarsjóði árið 2024. Umsóknarfrestur er til og með 21. maí nk. Kl.15:00. Tónlistarmiðstöð sinnir úthlutun úr Tónlistarsjóði fyrir hönd Menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

    28. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Allt er hægt á íslensku: sigurvegari í efniskeppni vandamálaráðuneytisins

    Metnaðarfullt og skemmtilegt myndband þar sem fjölbreyttir hæfileikar þátttakenda njóta sín, auk íslenskrar tungu. Endursköpun flókins kvikmyndaatriðis er leyst með miklu hugmyndaflugi, sköpunarkrafti og natni við smáatriði þar sem öllum brögðum er beitt. Ástríða fyrir viðfangsefninu leynir sér ekki, það er allt hægt á íslensku!

    26. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun

    Ráðherra kynnir HVIN verklagið & breytingarnar í Nýsköpunarviku

    HVIN verklagið snýst um árangur – en hvers vegna eru kerfisbreytingar nauðsynlegar til að ná árangri? Getum við notað aðferðafræði nýsköpunar betur í stjórnkerfinu? Til að vinna hraðar, forgangsraða, gera meira fyrir minna, fækka verkefnum og hætta jafnvel við einhver?

    26. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ísland, sækjum það heim! 538,7 milljónir króna til uppbyggingar ferðamannastaða

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, úthlutaði í dag úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. Að þessu sinni hljóta 29 verkefni styrk úr sjóðnum, samtals að fjárhæð 538,7 milljónir króna, og dreifast þau um land allt.

    24. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ný örnefnanefnd skipuð

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað nýja örnefnanefnd skv. 4. gr. laga um um örnefni, nr. 22/2015. Um hlutverk nefndarinnar er fjallað í framangreindum lögum og í reglugerð um störf örnefnanefndar, nr. 1040/2017. Um hlutverk og markmið örnefnanefndar segir í 2. gr. reglugerðarinnar: „Örnefnanefnd skal í störfum sínum miða að varðveislu íslensks menningararfs. Nefndin skal m.a. stuðla að verndun örnefna og nafngiftahefða og tryggja að ný örnefni séu í samræmi við íslenska málfræði og íslenska málvenju og að þau séu í samræmi við staðhætti og örnefnahefð á viðkomandi svæði. Þá skal örnefnanefnd gæta þess að samræmis sé gætt í stjórnsýslu við skráningu örnefna þannig að ferli nafngifta sé opið, gagnsætt og skilvirkt.“ Skipunartímabil örnefnanefndar er frá 1. apríl 2024 til 31.…

    24. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tónlistarmiðstöð opnuð formlega í gær

    „Með því að færa íslenskri tónlist varanlegt heimili er verið að taka mikilvæga stefnu til framtíðar og gera þá umgjörð sem við höfum skapað listgreininni mun aðgengilegri. Nú verður hægt að leita á einn og sama staðinn eftir stuðningi, upplýsingum og innblæstri sem áður dreifðist yfir fjölda stofnanna. Þannig sameinast mikilvæg þekking og framtíðaráform undir einu þaki. Verkefni Tónlistarmiðstöðvar eru því mörg og spennandi. Það er ekki síst íslensku tónlistarfólki að þakka sem hefur með krafti sínum kveikt neista sem hefur skilað okkur einskærum áhuga á að leggja stund á tónlist, skapa tónlist og njóta tónlistar,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

    24. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hildurgunnur opnar fyrir fullu húsi í Feneyjum

    Sýning Hildigunnar Birgisdóttur Þetta er mjög stór tala (Commerzbau) opnaði formlega síðastliðinn fimmtudag á Feneyjatvíæringnum og lýkur í dag. Sýningin er undir sýningarstjórn bandaríska sýningarstjórans Dan Byers og samanstendur af nýjum skúlptúrum og innsetningum. Sýningin var vel sótt líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd frá opnun íslenska skálans.

    23. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Áslaug nýr rektor Háskólans á Akureyri

    Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir hefur verið skipuð rektor Háskólans á Akureyri frá og með 1. júlí næstkomandi.

    22. apr. 2024Innviðaráðuneytið, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Netöryggi, Nýsköpun, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Varanlegur stuðningur við verðmætasköpun framtíðar

    Aukinn stuðningur við rannsóknir og þróun er gerður varanlegur í nýrri fjármálaáætlun. Þá er boðuð áframhaldandi sókn fyrir háskóla, ljósleiðaravæðing landsins heldur áfram og netsamband meðfram hringveginum bætt.

    • First
    • Prev
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband