Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð
    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 451–500 af 640
    Raða eftir:
    19. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Evrópusamvinna, Landamæraeftirlit, Alþjóðamál

    Dómsmálaráðherra fundaði með Frontex um landamærin

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra átti fund með Hans Leijtens framkvæmdastjóra Frontex, Landamæra- og strandgæslustofnunar Evrópu. Hann mætti til Reykjavíkur til að eiga samtal við dómsmálaráðherra og starfsfólk Ríkislögreglustjóra.

    17. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Sýslumenn, Hagsýn í rekstri

    Frumvarp til laga um sameinað embætti sýslumanns samþykkt í ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin samþykkti frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag.

    14. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Mannréttindi forsenda réttlátra, friðsælla og velmegandi samfélaga

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttis- og mannréttindamála, ávarpaði 69. Kvennanefndarfund Sameinuðu þjóðanna (csw69) sem fram fer í New York 10.-21. mars 2025.

    11. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Schengen-samstarfið, Landamæraeftirlit

    Ráðherra heimsótti lögregluna á Suðurnesjum

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra heimsótti á dögunum lögregluna á Suðurnesjum þar sem hún kynnti sér starfsemi embættisins og nýtt komu- og brottfararkerfi Schengen-svæðisins (Entry/Exit System – EES).

    10. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

    Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála. Ráðuneytið veitir slíka styrki til eins árs í senn. Áhersla verður lögð á verkefni og viðburði sem snúa að baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og munu þau verkefni njóta forgangs.

    07. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Lög og réttur

    Dómsmálaráðherra vill þyngja refsingar við ofbeldisbrotum

    Dómsmálaráðherra hefur óskað eftir athugun refsiréttarnefndar á því hvort tilefni sé til að endurskoða ákvæði almennra hegningarlaga sem varða líkamsárásir.

    06. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi, Jafnrétti

    Áform um breytingu á jafnlaunavottunarkerfinu í samráðsgátt

    Dómsmálaráðuneytið hefur kynnt áform um frumvarp til laga inn í samráðsgátt er varðar breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020 (jafnlaunakerfi).

    02. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Ríkisstjórn samþykkir aðgerðir til að fjölga lögreglumönnum

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu dómsmálaráðherra um að stöðugildum innan lögreglu verði fjölgað um fimmtíu og að fjölgunin komi til framkvæmda þegar á þessu ári.

    02. mar. 2025Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar

    Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um embætti héraðsdómara

    Jónas Þór Guðmundsson og Brynjar Níelsson hæfastir umsækjenda

    27. feb. 2025Dómsmálaráðuneytið, Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, Dómstólar, Lög og réttur

    Skilvirkni aukin í endurheimt ávinnings af glæpum

    Drög að frumvarpi dómsmálaráðherra til að auka skilvirkni og efla getu yfirvalda til að endurheimta ávinninga af glæpum hafa verið lögð inn í Samráðsgátt.

    20. feb. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Tryggjum úrræði fyrir börn

    Ráðherranefnd um málefni barna fundaði í gær um alvarlega stöðu mála vegna neyðarvistunar og úrræða fyrir börn með fjölþættan vanda. Nefndin er einhuga um að leita lausna sem fyrst á þeim bráðavanda sem uppi er og að hefja skuli vinnu við að tryggja úrræði fyrir börn með fjölþættan vanda.

    20. feb. 2025Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla, Dómstólar

    Dómsmálaráðherra heimsótti starfsstöðvar á Norðurlandi

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra heimsótti nýverið starfsfólk þeirra starfsstöðva á Norðurlandi sem heyra undir dómsmálaráðuneytið.

    14. feb. 2025Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar

    Jónas Þór Guðmundsson og Brynjar Níelsson taka við embætti héraðsdómara

    Dómsmálaráðherra hefur skipað Jónas Þór Guðmundsson í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjaness frá og með 13. mars 2025. Ráðherra hefur jafnframt sett Brynjar Níelsson í embætti dómara með starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur frá 14. febrúar – 31. desember 2025.

    09. feb. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Öryggi þolenda eflt með rafrænu eftirliti

    Dómsmálaráðherra hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda áform um breytingar á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Helsta breytingin felur í sér að komið verði á fyrirkomulagi um rafrænt eftirlit með staðsetningarbúnaði, t.a.m. ökklaböndum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Breytingunum er ætlað að styrkja réttarstöðu brotaþola og þá sérstaklega þeirra sem mega þola heimilisofbeldi og umsáturseinelti.

    09. feb. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Yfir 30 aðgerðir til að bæta stöðu hinsegin fólks

    Dómsmálaráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum hinsegin fólks. Í aðgerðaráætluninni eru 32 aðgerðir sem miða að því að bæta stöðu og réttindi hinsegin fólks og tekur hún til áranna 2026-2029.

    04. feb. 2025Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi, Jafnrétti

    Framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum lögð fyrir Alþingi

    Dómsmálaráðherra mælti í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2025-2028 á Alþingi. Framkvæmdaáætluninni er ætlað að skilgreina stefnu stjórnvalda og lýsa verkefnum innan Stjórnarráðsins sem ýmist er ætlað að varpa ljósi á stöðu kynjanna eða fela í sér beinar aðgerðir í þágu kynjajafnréttis.

    04. feb. 2025Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Breytingar á útlendingalögum afgreiddar úr ríkisstjórn

    Ríkisstjórnin hefur afgreitt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar). Frumvarpið, sem nú verður lagt fyrir Alþingi, er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að gæta samræmis við reglur nágrannaríkja og Evrópusambandsins á sviði útlendingamála og að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd og brottvísa einstaklingum sem fremja alvarleg afbrot eða ógna öryggi ríkisins.

    01. feb. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Jakob Birgisson og Þórólfur Heiðar Þorsteinsson aðstoða dómsmálaráðherra

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ráðið Jakob Birgisson og Þórólf Heiðar Þorsteinsson sem sína aðstoðarmenn.

    29. jan. 2025Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar

    Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

    Stefnt er að því að kennsla á fyrri hluta fari fram dagana 17. til 28. febrúar 2025. Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 6. til 21. mars 2025.

    21. jan. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti

    Kynbundinn launamunur minnkar samkvæmt nýrri rannsókn

    Kynbundinn launamunur hefur dregist saman á árabilinu 2019 – 2023 hvort heldur litið er til atvinnutekna, leiðrétts eða óleiðrétts launamunar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Hagstofu Íslands á launamun karla og kvenna. Jafnréttismál munu flytjast til dómsmálaráðuneytisins þann 1. mars frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu en dómsmálaráðherra hefur þegar tekið við forræði málaflokksins.

    17. jan. 2025Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla

    Ætlar að fjölga lögreglumönnum um 50 á þessu ári

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra mætti á fund lögregluráðs fimmtudaginn 16. janúar, ávarpaði þar lögreglustjóra og átti við þá samtal. Þetta var jafnframt fyrsti fundurinn sem dómsmálaráðherra átti með öðrum en starfsfólki ráðuneytisins. Á fundi lögregluráðs tilkynnti dómsmálaráðherra lögreglustjórum áform sín um að fjölga lögreglumönnum um fimmtíu þegar á þessu ári. Ráðherra sagði við þetta tækifæri að fáliðuð lögregla ógni ekki aðeins öryggi lögreglumanna, heldur einnig öryggi fólksins í landinu.

    16. jan. 2025Dómsmálaráðuneytið

    Fréttaannáll dómsmálaráðuneytisins árið 2024

    Á árinu 2024 birtust um 100 fréttir á vef dómsmálaráðuneytisins af vettvangi hinna fjölmörgu málaflokka sem eru á verkefnasviði ráðuneytisins. Í þessari frétt er birtur myndrænn annáll af helstu fréttum ársins.

    10. jan. 2025Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Norðurlöndin samstíga í útlendingamálum

    Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sat reglubundinn ráðherrafund norrænna ráðherra sem haldinn var í Helsinki dagana 30. september og 1. október. Á fundinum komu saman ráðherrar Norðurlandanna og ræddu sameiginlegar áskoranir ríkjanna í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd og fólksflutninga. Ráðherrar voru einhuga um mikilvægi þess að Norðurlöndin standi þétt saman þegar kemur að reglusetningu og framkvæmd mála er varða umsækjendur um alþjóðlega vernd.

    07. jan. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna á breiðum grunni – stöðutaka

    Ný stöðutaka aðgerðahóps stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum sýnir nauðsyn áframhaldandi markvissra aðgerða til að mæta þörfum barna í mestum vanda.

    23. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar

    Berglind Svavarsdóttir skipuð í embætti dómanda við Endurupptökudóm

    Þann 20. desember síðastliðinn skipaði dómsmálaráðherra Berglindi Svavarsdóttur lögmann í embætti dómanda við Endurupptökudóm frá og með 23. desember 2024 til og með 31. janúar 2026.

    22. des. 2024Dómsmálaráðuneytið

    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir tekur við lyklavöldum í dómsmálaráðuneytinu

    Ráðherraskipti urðu í dómsmálaráðuneytinu á sunnudag þegar nýskipaður dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, tók við lyklum úr hendi Guðrúnar Hafsteinsdóttur fráfarandi ráðherra. Guðrún hefur gegnt embættinu síðan 19. júní 2023.

    20. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Ísland kallar eftir tímabundnu afnámi vegabréfsáritunarfrelsis Venesúela inn á Schengen-svæðið

    Ísland hefur nú lagt fram beiðni til Evrópusambandsins um að tekið verði til skoðunar að fella tímabundið úr gildi undanþágu Venesúela frá áritunarskyldu til að ferðast inn á Schengen-svæðið. Ástæðan er annars vegar misnotkun ríkisborgara Venesúela á áritanafrelsinu í ljósi mikils fjölda umsókna um vernd á Íslandi og annars staðar í Evrópu og hins vegar skortur á samvinnu þarlendra stjórnvalda við endurviðtöku eigin ríkisborgara í kjölfar synjunar á vernd.

    20. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Dómsmálaráðherra skipar Veru Dögg Guðmundsdóttur í Kærunefnd útlendingamála

    Dómsmálaráðherra hefur skipað Veru Dögg Guðmundsdóttur í Kærunefnd útlendingamála. Vera var valin úr hópi sex umsækjenda en einn dró umsókn sína til baka að loknu hæfnismati. Kærunefnd útlendingamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem úrskurðar í málum sem til hennar eru kærð á grundvelli 7 gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

    20. des. 2024Dómsmálaráðuneytið

    Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um embætti dómanda við Endurupptökudóm

    Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra og er það mat nefndarinnar að Berglind Svavarsdóttir lögmaður sé hæfust umsækjenda til að gegna embætti dómanda við Endurupptökudóm.

    19. des. 2024Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Dómsmálaráðuneytið

    Eftirsótt námskeið um öryggis- og varnarmál

    Um 50 manns hafa nú útskrifast af ítarlegu námskeiði um öryggis- og varnarmál, sem varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins og skrifstofa almanna- og réttaröryggis í dómsmálaráðuneytinu halda sameiginlega. Haldin hafa verið þrjú námskeið sem hafa verið vel sótt.

    13. des. 2024Forsætisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Unnið að úrbótum úrræða og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum

    Minnisblað með fyrstu tillögum starfshóps sjö ráðuneyta um úrbætur á úrræðum og þjónustu vegna einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum var kynnt á fundi ríkisstjórnar í dag.

    13. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Sýslumenn, Byggðamál

    Úrbætur á biðtíma hjá fjölskyldusviði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu

    Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að veita Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu tímabundna rekstrarstyrkingu, svo hægt verði að ráðast í átaksverkefni við sáttamiðlun og sérfræðiráðgjöf. Auk þess verða verkefni flutt til annars embættis sem hefur meira svigrúm í rekstri. Um er að ræða tímabundnar aðgerðir sem þykja líklegar til árangurs og til þess fallnar að brúa bilið þar til hægt sé að ráðast í varanlegar breytingar, með hliðsjón af niðurstöðu stefnumótunar- og greiningarvinnu málaflokksins.

    12. des. 2024Dómsmálaráðuneytið

    Auglýsing um breytingu á áfrýjunarfjárhæð

    Samkvæmt 152. gr. laga um meðferð einkamála, 91/1991, er það skilyrði áfrýjunar, þegar mál varðar fjárkröfu, að fjárhæð kröfunnar nemi a.m.k. 1.000.000 króna. Áfrýjunarfjárhæðinni skal breyta um hver áramót miðað við vísitölu neysluverðs frá 1. janúar 2018 og auglýsa í Lögbirtingablaðinu.

    12. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Rannsókn á ofbeldi í nánum samböndum og fjölskyldum hinsegin fólks á Íslandi

    Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann nýverið rannsókn á ofbeldi í nánum samböndum og fjölskyldum hinsegin fólks á Íslandi. Rannsóknin er hluti aðgerðaáætlunar í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025 en hún er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og eru niðurstöður hennar til þess fallnar að gefa innsýn í stöðu málaflokksins og hvaða aðgerða er þörf. ​

    11. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar

    Tveir umsækjendur um embætti dómanda við Endurupptökudóm

    Þann 11. október 2024 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti dómanda við Endurupptökudóm. Tveir sóttu um embættið: Berglind Svavarsdóttir lögmaður og Matthías G. Pálsson lögfræðingur.

    07. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Jákvæðir hvatar við sjálfviljuga heimför

    Dómsmálaráðuneytið hefur gert breytingar á reglugerð um fjárhagsaðstoð við sjálfviljuga heimför útlendinga. Markmiðið með breytingunum er að skapa jákvæðan hvata fyrir umsækjendur um vernd frá Venesúela og öðrum ríkjum til að snúa til síns heima. Þannig verði létt álagi af verndarkerfinu og komið í veg fyrir að málarekstur dragist á langinn að óþörfu með tilheyrandi kostnaði.

    06. des. 2024Dómsmálaráðuneytið

    Í tilefni af erindi fjármálaráðuneytis til lögreglu

    Grundvallarsjónarmið að meðferð sakamála eigi ekki að lúta pólitískum afskiptum valdhafa.

    03. des. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þing kvennanefndar SÞ: Jafnrétti kynjanna forgangsverkefni íslenskra stjórnvalda

    Jafnrétti kynjanna er og hefur verið forgangsverkefni íslenskra stjórnvalda, hvort sem er heima fyrir eða í alþjóðlegu samstarfi – þar á meðal í framboði Íslands til Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2025-2027. Þetta kom fram í ávarpi Íslands sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, flutti á þingi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í gærkvöldi.

    28. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Sýslumenn, Byggðamál

    Verkefni sýslumanna færð á milli umdæma

    Dómsmálaráðuneytið hefur undanfarið haft framkvæmd sérverkefna sýslumanna til skoðunar. Sérverkefni sýslumanna eru verkefni sem einu sýslumannsembætti er falið að annast á landsvísu, öfugt við svonefnd kjarnaverkefni sem öll embættin fara með framkvæmd á innan hvers umdæmis. Um er að ræða heildarskoðun á staðsetningu sérverkefnanna, bæði núverandi og nýrra sem færast til sýslumanna 1. janúar nk., og hefur áhersla verið lögð á að finna verkefnunum stað sem þykir til þess fallinn að bæta þjónustuna við almenning samhliða því að standa vörð um byggðamál.

    28. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Almannavarnir

    Ytri rýni vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga

    Dómsmálaráðherra hefur ákveðið, samkvæmt lögum um almannavarnir, að skipa þriggja manna starfshóp sérfræðinga sem mun framkvæma ytri rýni á aðgerðum eða aðgerðarleysi viðbragðsaðila tengt jarðhræringunum á Reykjanesskaga. Nefndin verður skipuð Hafsteini Dan Kristjánssyni, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Kjartani Þorkelssyni, fyrrum lögreglustjóra Suðurlands og Sóleyju Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingi. Hafsteinn Dan Kristjánsson verður formaður nefndarinnar.

    27. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið

    Umsókn um nafnskírteini á Ísland.is

    Nýlega var opnað fyrir umsóknir um nafnskírteini á Ísland.is en nafnskírteini er ein af þremur tegundum persónuskilríkja sem hægt er að nota til auðkenningar á Íslandi. Persónuskilríkin eru nafnskírteini og vegabréf, auk ökuskírteina.

    22. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Mannréttindi og jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Félags- og vinnumarkaðsráðherra úthlutar styrkjum til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

    Bjarni Benediktsson félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til sex verkefna á sviði jafnréttismála. Heildarfjárhæð styrkjanna er tíu milljónir króna.

    20. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið

    Kynningarfundur um nýtt fangelsi í beinu streymi

    Kynning á nýju öryggisfangelsi í landi Stóra Hrauns fer fram miðvikudaginn 20. nóvember kl. 19:30. Fundurinn er í beinu streymi á Youtube.com

    19. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Löggæsla, Stafrænt Ísland, Dómstólar

    Tímamót í stafrænni vegferð dómstóla og lögreglu

    Ákærur í umferðalagabrotum er nú hægt að senda rafrænt frá lögreglu til dómstóla og boðun í dóm birtist í pósthólfi þess ákærða á island.is. Með þessu er stigið stórt skref til umbóta í meðferð mála sem fara frá lögreglu og til dómstóla, en hingað til hafa ákærur, ásamt skjalaskrám, verið fluttar á pappír á milli einstaklinga og stofnana.

    18. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar, Lög og réttur

    Nýjar viðmiðunarrreglur sakarkostnaðar

    Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út nýjar viðmiðunarreglur um niðurfellingu sakarkostnaðar. Viðmiðunarreglurnar koma í stað viðmiðunarreglna sem gefnar voru út árið 2019.

    15. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Útlendingar

    Sjö sóttu um kærunefnd útlendingamála

    Dómsmálaráðuneytið auglýsti nýverið embætti nefndarmanns í kærunefnd útlendingamála laust til umsóknar. Sjö umsóknir bárust um starfið.

    15. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Landamæraeftirlit, Útlendingar

    Dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóri kynna stefnu og landsáætlun í málefnum landamæra

    Dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóri hafa kynnt nýja stefnu stjórnvalda í málefnum landamæra og landsáætlun um samþætta landamærastjórnun. Ný stefna stjórnvalda í málefnum landamæra hefur það meginmarkmið að styrkja landamæraeftirlit með því að grípa til aðgerða til að takast á við aukna umferð farþega til landsins og draga úr skipulagðri brotastarfsemi sem virðir engin landamæri.

    11. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið

    Nýtt öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni - kynningarfundur 20. nóvember

    Athugið að fundinum á Eyrarbakka hefur verið frestað um viku og verður miðvikudaginn 20. nóvember Dómsmálaráðherra boðar til kynningar á nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni miðvikudaginn 20. nóvember kl. 19:30. Viðburðurinn fer fram í Rauða húsinu, Eyrarbakka, Búðarstíg 4 og verður streymt á vefnum.

    09. nóv. 2024Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Samstaða um auknar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum

    Stjórnvöld hafa ákveðið að fjölga aðgerðum vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og auka fjármagn til aðgerðanna. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í gær. Alvarlegt ofbeldi sem hefur átt sér stað á síðustu misserum undirstrikar þörfina á samstilltu átaki til að bregðast við þróuninni af festu.

    03. nóv. 2024Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Þing kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sett í dag

    Árlegt þing kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna var sett í New York í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, sækir þingið fyrir hönd Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Hann flytur ávarp Íslands á þinginu.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband