05. sep. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Íslandsbanki
Samið við erlenda söluaðila vegna fyrirhugaðs útboðs á hlutum í Íslandsbanka
Í gær samþykkti Alþingi breytingar á lögum nr. 80/2024 um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf. Fyrirhugað er að sala fari fram með markaðssettu útboði á fyrri helmingi ársins, þar sem einstaklingar hafa forgang. Lögin, sem sett voru í fyrra um sölu eftirstandandi hluta ríkisins, tryggja að útboðsferlið fari fram með hlutlægni, hagkvæmni, jafnræði og gagnsæi að leiðarljósi. Mikil áhersla er lögð á að ferlið í heild sinni njóti trausts.