04. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Þjóðlendur
Málsmeðferð vegna þjóðlendna á svæði 12 frestað
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur óskað eftir því að málsmeðferð vegna þjóðlendna á svæði 12 (eyjar og sker) verði frestað svo unnt sé að endurskoða kröfur ríkisins með hliðsjón af betri gögnum. Þann 2. febrúar sl. voru settar fram kröfur fyrir hönd ríkisins um þjóðlendur á svæði 12 sem varða eyjar og sker.