29. maí 2026Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Almannaöryggi, Almannavarnir, Dómsmálaráðuneytið
Unnið að eflingu áfallaþols á vegum stjórnvalda í samstarfi við atvinnulífið
Um nokkurt skeið hefur verið unnið að því að kortleggja og efla áfallaþol á vegum stjórnvalda og stefnt er að auknu samstarfi við atvinnulífið og hagsmunaaðila um það mikilvæga verkefni. Markmiðið er að auka yfirsýn, efla samhæfingu og auka viðbúnað stjórnvalda gagnvart margvíslegri vá, þar á meðal vegna aukinnar óvissu í alþjóðlegu umhverfi.