07. nóv. 2025Dómsmálaráðuneytið, Dómstólar, Stafrænt Ísland, Lög og réttur
Áform um stafræna málsmeðferð í samráðsgátt
Dómsmálaráðherra hefur lagt fram áform í Samráðsgátt stjórnvalda um lögfestingu stafrænnar málsmeðferðar hjá sýslumönnum og dómstólum, í málum sem varða erfðalög, lög um aðför og lög um nauðungarsölu. Markmiðið með breytingunum er að einfalda og bæta þjónustu, tryggja skilvirkari afgreiðslu mála og styðja við stefnu stjórnvalda um stafræna þjónustu.