21. ágú. 2026Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd, Friðlýsingar
Átak í friðlýsingum
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Átak í friðlýsingum
Á árunum 2018-2021 var unnið að sérstöku átaksverkefni tengdu friðlýsingum í nánu samstarfi umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Umhverfisstofnunnar og hagaðila Einnig var unnið að því að kanna hvaða áhrif friðlýsingar hafa í samfélaginu.
Verkefnin snéru annars vegar að friðlýsingum í samræmi við náttúruverndaráætlun og hins vegar að svæðum sem eru í verndarflokki verndar- og orkunýtingaáætlunar.
Meðal þeirra svæða sem friðlýst voru á grundvelli átaksins voru Geysir í Haukadal, Goðafoss í Skjálfandafljóti, Búrfell og Búrfellsgjá á höfuðborgarsvæðinu, Látrabjarg á Vestfjörðum og Kerlingarfjöll á miðhálendinu