26. jún. 2025Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Umhverfi og náttúruvernd
Fljótlegra og einfaldara að opna veitingastaði með nýrri reglugerð
Breyting á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022, hefur tekið gildi og opnað hefur verið fyrir skráningu á Ísland.is. Með reglugerðarbreytingunni, sem Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði þann 20. júní síðastliðinn, verður rekstur veitingastaða skráningarskyldur í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Þannig er málsmeðferðartími stjórnvalda styttur umtalsvert.