{_Published:dd. MMMM yyyy}
/

Tímabundin afleysing til átta mánaða við sendiráð Íslands í Stokkhólmi – staðarráðinn sérfræðingur

{image.Description}

Sendiráðið í Stokkhólmi sinnir hagsmunagæslu fyrir Ísland í Svíþjóð og veitir Íslendingum í Svíþjóð margvíslega þjónustu. Auk Svíþjóðar er Kýpur í umdæmi sendiráðsins. Tengsl Svíþjóðar og Íslands á sviði stjórnmála, viðskipta og menningar halda áfram að styrkjast sem og ímynd Íslands í Svíþjóð. Sendiráðið leggur áherslu á verkefni sem ýta undir og styðja við þessa þróun og vinnur m.a. að því að auka viðskipta- og menningarsamskipti landanna.

Helstu verkefni:

  • Menningar- og viðskiptakynningar og upplýsingagjöf um íslenska menningu í samstarfi við Íslandsstofu og kynningarmiðstöðvar listgreina á Íslandi. Gerð viðskipta- og menningaráætlana sendiráðsins.
  • Umsjón með menningar- og viðskiptaviðburðum sendiráðsins.
  • Upplýsingamiðlun á heimasíðu og samfélagsmiðlum um íslenska menningu og viðskipti.
  • Viðskiptaþjónusta á sviði markaðsmála, fjárfestinga, tollamála og við myndun viðskiptasambanda. Greiningar- og skýrslugjöf um efnahags- og viðskiptamál.
  • Aðstoð við íslenska aðila í Svíþjóð á sviði viðskipta og menningar og samvinna og samskipti við ýmsa aðila um viðskipta- og menningarmál.
  • Aðstoð við almenna afgreiðslu og borgaraþjónustu og skrifstofustörf, þ.m.t. móttöku gesta, símasvörun, upplýsingagjöf o.fl.
  • Önnur verkefni samkvæmt ákvörðun sendiherra.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólagráða sem nýtist í starfi.
  • Þekking á íslensku menningar- og viðskiptalífi er kostur.
  • Góð þekking á sænsku viðskipta- og menningarumhverfi stofnunum og samfélagi.
  • 3-5 ára reynsla sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Gott vald á sænsku og ensku í ræðu og riti (færni í íslensku kostur).
  • Mjög góð tölvu- og  tækniþekking s.s. Outlook, Word, Excel, Power Point. Þekking á notkun samfélagsmiðla.

Leitað er að einstaklingi sem hefur m.a. ríka þjónustulund, tekur frumkvæði, er lipur í mannlegum samskiptum og tengslamyndun, er nákvæmur, getur unnið sjálfstætt og gengið skipulega til verks.

***

Staðarráðinn sérfræðingur starfar á sænskum vinnumarkaði og fara starfskjör eftir sænskum reglum.

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2025. Umsóknir skulu berast sendiráðinu á tölvupóstfangið [email protected] merktar „staðarráðinn sérfræðingur“. Umsóknir skulu ritaðar á íslensku eða sænsku og þeim skal fylgja stutt kynningarbréf og ferilskrá umsækjanda.

Upphafstími starfs er 1. janúar 2026. 

Tímabundin afleysing til átta mánaða.

Sendiráðið hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar eru veittar í sendiráðinu í gegnum í gegnum síma 08-4428300 eða netfangið [email protected]