{_Published:dd. MMMM yyyy}
/

Saltfiskkeppni á Rimini

{image.Description}
Guðmundur Árnason var heiðursgestur á saltfiskkeppni í Rimini. Um var að ræða samstarfsverkefni Baccalà Islandese og FIC (kokkasamtök Ítalíu) sem kynntu íslenskan saltfisk. Guðmundur er alinn upp við saltfiskverkun á Eskifirði og þekkir því vel til hefða og handverks á íslenskum saltfiski. Hann gat um það í stuttu ávarpi að það væru nú rétt um 100 ár liðin frá því að Íslendingar hófu að selja saltfisk til Ítalíu. Fyrsti ræðismaður Íslands á ítalíu var skipaður 1946, Hálfdán Bjarnason saltfiskkaupmaður í Genóa. Sigurvegari keppninnar var Giovanni Mercante frá Vicenza og hlýtur hann í verðlaun ferð til Íslands þar sem hann fær tækifæri til að heimsækja framleiðendur og kynnast íslenskri matarmenningu.