04 desember 2025
/

Úr dagskrá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vikuna 10. – 14. nóvember 2025

Mánudagur 10. nóvember

• Fundur með starfsfólki um sérstök fagmálefni ráðuneytisins
• Þingflokksfundur
• Mælti fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulögum á Alþingi

Þriðjudagur 11. nóvember

• Ríkisstjórnarfundur
• Fjarfundur sem settur heilbrigðisráðherra með framkvæmdastjóra rekstrar á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna uppsagnar ferliverksamninga við sjúkrahúsið

Miðvikudagur 12. nóvember

• Fundur með yfirstjórn ráðuneytisins
• Þingflokksfundur
• Óundirbúnar fyrirspurnir og atkvæðagreiðslur á Alþingi
• Mælti fyrir þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða á Alþingi

Fimmtudagur 13. nóvember

• Fundur með fulltrúum Umhverfis- og orkustofnunar og Raforkueftirlitsins
• Viðtal við SÝN
• Undirritun sameiginlegrar yfirlýsingar ráðuneytisins, Elkem Ísland, Þróunarfélags Grundartanga og Orkuveitunnar, ásamt dótturfélögunum Orku náttúrunnar og Carbfix, um aukin umsvið loftslagsvænnar atvinnustarfsemi á Grundartanga
• Heimsókn í Norðurál

Föstudagur 14. nóvember

• Ríkisstjórnarfundur
• Fjarfundur sem settur heilbrigðisráðherra með bæjarstjóra Akureyrarbæjar vegna uppsagnar ferliverksamninga við Sjúkrahúsið á Akureyri