11 september 2026
/

Föstudagspóstur 11. september 2026

Heil og sæl,

Föstudagspósturinn er loksins kominn úr löngu sumarfríi en við vitum að hann er aufúsugestur á hverju heimili!

Við skulum renna yfir það helsta sem á daga okkar í utanríkisþjónustunni hefur drifið að undanförnu en það er úr nógu að taka.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fundaði með Volodómír Selenskí, Úkraínuforseta, á Keflavíkurflugvelli á miðvikudaginn.

 

Alþingi var sett á þriðjudaginn 8. september og þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er nú aðgengileg á stjórnarráðsvefnum. Mál sem falla undir utanríkisráðherra má finna neðst í yfirlitinu.

Utanríkisráðherra sendi á þriðjudaginn bréf til Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, sem fer með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins (ESB), vegna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland skyldi hefja á ný viðræður um aðild að ESB sem fram fór 29. ágúst síðastliðinn. Í bréfinu var greint frá niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og því að ríkisstjórnin hafi ekki í hyggju að hefja aðildarviðræður á ný. Í bréfinu er lögð áhersla á að enda þótt niðurstaðan hafi verið þessi, haldi náið samstarf Íslands og ESB áfram, sem hvíli á traustum grunni. Bréf utanríkisráðherra er á ensku, en hér má finna íslenska þýðingu.

Að þessu sögðu, þá er vert að nefna það að Þorgerður Katrín sótti óformlegan fund utanríkisráðherra aðildarríkja ESB um málefni Úkraínu sem fór fram í Wicklow á Írlandi í síðustu viku þar sem Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, var gestgjafi fundar vegna formennsku Írlands í ráðherraráðinu.

 

Þorgerður Katrín var meðal tólf utanríkisráðherra sem gáfu út sameiginlega yfirlýsingu er varðar áform um upptöku viðskiptaþvingana eða annarra aðgerða vegna ólöglegra landtökubyggða Ísraela í Palestínu sem grafi undan tveggja ríkja lausninni svokölluðu. Í yfirlýsingunni er áréttaður stuðningur ríkjanna við tveggja ríkja lausnina og mikilvægi þess að koma á varanlegum og réttlátum friði. Skorað er á Ísraelsstjórn að láta tafarlaust af útþenslu landtökubyggða í Palestínu.

Berlín

Sendiherra Íslands í Þýskalandi, Auðunn Atlason, og sendiherrar Norðurlanda,  Eystrasaltsríkja og Úkraínu funduðu í morgun með Armin Lachet, formanni utanríkismálanefndar þýska þingsins.

Helsinki

50 ára afmæli Norræna fjárfestingabankans var fagnað í Helsinki í vikunni. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, flutti ávarp á afmælisviðburðinum. Ísland hefur verið meðlimur að bankanum allt frá upphafi. Á fyrstu myndinni má sjá Daða Má, fjármálaráðherra, ásamt Nínu Björku Jónsdóttur, sendiherra Íslands í Finnlandi.

Sendiráðið stóð einnig fyrir hönnunarviðburði í vikunni sem leiddi saman íslenska og finnska hönnuði í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og Íslandsstofu.

Í síðustu viku afhendi Nína Björk trúnaðarbréf sitt til Alexander Stubb, forseta Finnlands, við hátíðlega athöfn í forsetahöllinni í Helsinki.

Freetown

Sendiráð Íslands í Freetown, Síerra Leóne, tók í vikunni þátt í opnunarathöfn Macca Soro grunnskólans í Pujehun héraði ásamt fulltrúum frá landaskrifstofum Barnaheilla á Íslandi og Síerra Leóne og fulltrúum frá stjórnvöldum Síerra Leóne. Bygging skólans var fjármögnuð af Barnaheillum á Íslandi sem hafa um árabil verið samstarfsaðilar íslenskra stjórnvalda. Enginn grunnskóli var til staðar í Macca Soro þorpi áður en ráðist var í byggingu skólans. Um 282 börn sækja skólann sem stendur en búist er við því að sá fjöldi aukist með nýrri skólabyggingu.

Barnaheill hafa starfað í Síerra Leóne frá árinu 2021 og verkefnið Right to Be a Child, sem er samstarfsverkefni með utanríkisráðuneytinu, miðar að því að tryggja öryggi og velferð allra barna og vernda þau gegn ofbeldi á heimilum, í nærsamfélaginu og í skólum. Verkefnið nær til 16 grunnskóla sem þjóna 88 viðkvæmum samfélögum í Pujehun héraði.

París

María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra Íslands í Frakklandi sem einnig gegnir sendiherrastöðu gagnvart Líbanon, afhenti í vikunni Joseph Aoun, forseta Líbanons trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn í forsetahöllinni í Beirút.

Við athöfnina kom sendiherra á framfæri stuðningi Íslands við viðleitni líbönsku ríkisstjórnarinnar til friðar og uppbyggingar, þar á meðal innleiðingu vopnahlésins og samningaleiðina við varanlegum stöðugleika. Í heimsókninni hitti sendiherra einnig fulltrúa utanríkisráðuneytis Líbanons, Sameinuðu þjóðanna og sendiherra annarra Norðurlanda. Carla Jabre, kjörræðismaður Íslands í Líbanon, aðstoðaði við undirbúning heimsóknarinnar og bauð til kvölverðar til heiður sendiherra.

Kampala

Katrín Einarsdóttir afhendi í síðustu viku Charles Ssentogo, prótókóllstjóra úganska utanríkisráðuneytisins, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Úganda. Á fundi þeirra ræddi sendiherra náið og gott samstarf milli Íslands og Úganda einkum á sviði þróunarsamvinnu.

Tókýó

Hreinn Pálsson, sendiherra okkar í Japan, sótti Fukuoka ráðstefnu Nishihara samsteypunnar í vikunni þar sem fyrirtækið Global Vision var með kynningarbás um íslenskt lambakjöt. Global Vision sér um innflutning og dreifingu á íslensku lambakjöti á Japansmarkaði. Yfir þrjú þúsund fulltrúar veitinga- og hótelgeirans sóttu ráðstefnuna og fengu þar einstakt tækifæri til þess að kynnast íslensku lambakjöti og öðrum gæðaútflutningsvörum.

Einnig heimsótti hópur grunnskólanema frá Takasaki grunnskólanum sendiráðið okkar í Tókýó ásamt fulltrúum Takasaki UNESCO félagsins sem fengu kynningu á íslenskri menningu og menntakerfi.

Nýja Delí

Sendiráðið okkar í Nýju Delí, Indlandi, tók á móti hóp háskólanema frá Raisina House Foreign Policy School. Sendiherra okkar þar í landi, Benedikt Höskuldsson, ræddi við nemendurna um samstarf og samskipti Íslands og Indlands, Norðurslóðir og stöðu alþjóðamála.

Þórshöfn

Hópur kvenna frá BPW félaginu á Íslandi (Business and Professional Women) heimsóttu aðalræðisskrifstofu okkar í Þórshöfn í síðustu viku og ræddu við starfsfólk okkar.

Stokkhólmur

Sendiráðið okkar í Svíþjóð tók þátt í Norrænu lífvísindaráðstefnunni Nordic Science Days í Stokkhólmi í vikunni þar sem fyrirtæki, fjárfestar og frumkvöðlar komu saman til þess að kynna vörurnar sínar og hugmyndir. Þar mátti finna bás Íslandsstofu og sjö íslenskra fyrirtækja, en talsverð gróska hefur verið í geiranum á Íslandi undanfarin ár. Starfsfólk sendiráðsins okkar ræddi við ráðstefnugesti og samstarfsaðila með það að markmiði að kynna íslenskan markað og stuðla að frekara samstarfi við Ísland.
Og svo að lokum! Starfsfólk utanríkisráðuneytisins tók þátt í Treyjudeginum á föstudaginn til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Meira verður það ekki í bili!

Bestu kveðjur, Upplýsingadeild.