NOTE: This article is more than 5 years old.
31 maí 1996
/

Viðurkenning frá sjávarútv.ráðherra Rússlands


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________


Nr. 047



Í dag kl. 12:15 mun Vladimir Korelskij sjávarútvegsráðherra Rússlands veita Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra
sérstaka viðurkenningu fyrir framlag hans til góðra samskipta milli Rússlands og Íslands.

Stutt afhendingarathöfn verður í utanríkisráðuneytinu af þessu tilefni og eru fjölmiðlar velkomnir.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 31. maí 1996