NOTE: This article is more than 5 years old.
09 september 1997
/
Fjöldi sóknardaga krókabáta 1997/1998
Fjöldi sóknardaga krókabáta
á fiskveiðiárinu 1997/1998
Sjávarútvegsráðuneytið hefur í dag auglýst fjölda sóknardaga fyrir krókabáta á fiskveiðiárinu 1997/1998. Sóknardagar krókabáta, er stunda veiðar með handfærum eru 26 á fiskveiðiárinu, en sóknardagar krókabáta, er stunda veiðar með línu og handfærum eru 20. Á síðastliðnu fiskveiðiári var fjöldi sóknardaga fyrir báða hópana 84.
Fjöldi sóknardaga á fiskveiðiárinu hefur verið reiknaður út í samræmi við ákvæði laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum. Samkvæmt þeim skal fjöldi sóknardaga á hverju fiskveiðiári ákvarðaður fyrir hvorn hóp m.t.t. áætlaðs heildarþorskafla þeirra á því fiskveiðiári og meðalafla á sóknardag á næstliðnu fiskveiðiári.
Áætlaður heildarþorskafli línu- og handfærabáta á þessu fiskveiðiári er 2.158 lestir en var 1.836 lestir á því síðasta. Aflinn þá varð aftur á móti tæplega 10.300 lestir. Áætlaður heildarafli af þorski hjá handfærabátum á nýbyrjuðu fiskveiðiári er 3.002 lestir, en var 2.554 lestir á því síðasta og þá varð aflinn tæplega 10.400 lestir.
Afli þessara báta fór því verulega fram úr þeim áætlunum sem gerðar voru fyrir síðasta fiskveiðiár, sem hefur þessa miklu fækkun sóknardaga í för með sér.
Sjávarútvegsráðuneytið
9. september 1997.