NOTE: This article is more than 5 years old.
04 apríl 1998
/

Bókmenntir á samræmdu prófi 1999 - apríl 1998


Bókmenntir á samræmdu prófi 1999


Til grunnskóla


Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að prófað verði úr einni fornsögu og einni nútímaskáldsögu í bókmenntaþætti samræmds prófs í íslensku vorið 1999.

Bókmenntahluti samræmda prófsins í íslensku vorið 1999 verður miðaður við að nemendur hafi lesið eftirtalin verk:

  1. Annaðhvort Gísla sögu Súrssonar eða Grettis sögu Ásmundarsonar.
  2. Engla alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson.
Ráðuneytið hefur óskað eftir því að Námsgagnastofnun hafi þessar bækur á boðstólum.


Nánari upplýsingar um samræmt próf í íslensku í 10. bekk vorið 1999 verða sendar síðar frá Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála.

Líklegt er að vorið 1999 verði í síðasta sinn prófað úr Gísla sögu og Grettis sögu en ákvörðun um það verður kynnt síðar.



(Apríl 1998)