NOTE: This article is more than 5 years old.
06 maí 1998
/

Átak til leitar að jarðhita á köldum svæðum

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti
Nr. 7/1998




Iðnaðarráðherra boðar til blaðamannafundar í Borgartúni 6, fimmtudaginn 7. maí, kl. 11:00.

Tilefni fundarins er undirritun samkomulags milli iðnaðarráðuneytis, Orkuráðs og Byggðastofnunar um sérstakt átak til leitar að jarðhita á svokölluðum köldum svæðum.

Samkomulag hefur tekist milli ofangreindra aðila um fjármögnun tveggja ára átaks á þessu sviði, með allt að 60 milljóna króna framlagi. Á fundinum verður blaðamönnum kynnt innihald samkomulagsins.


Reykjavík, 6. maí 1998