NOTE: This article is more than 5 years old.
15 október 1998
/

Góð reynsla af stjórnarsamstarfi

"Reynslan af stjórnarsamstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur verið góð. Þar ríkja heilindi í samskiptum manna og ágreiningsmál eru leyst án þess að bera þau á torg. Auðvitað eru þetta ólíkir flokkar og stefnumál þeirra mismunandi. Ég hef bráðum setið á Alþingi í 24 ár og starfað með öllum flokkum í ríkisstjórn nema Kvennalistanum.

Það hefur gengið á ýmsu og oft verið stormasamara en í samstarfinu við sjálfstæðismenn nú," segir félagsmálaráðherrann um pólitísku stöðuna nú um stundir. Hvað þá með hræringar stjórnarandstöðumegin á landsvísu? Veldur það forystumanni úr Framsóknarflokki áhyggjum að Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag nái hugsanlega saman fyrir næstu þingkosningar, jafnvel hluti Kvennalistans líka?

"Ég fagna því út af fyrir sig ef þessir flokkar sameinuðust, því þá verða línur skýrari. Samt á ég eftir að sjá að náið samstarf eða jafnvel sameining gangi jafn greiðlega fyrir sig og sumir virðast gera ráð fyrir. Margir liðsmenn Alþýðubandalags og Kvennalista munu ekki taka upp kratarósina, enda gengi slíkt þvert á lífsskoðun þeirra.
Sameining þessara flokka mundi tvímælalaust styrkja mjög stöðu Framsóknarflokksins. Allar líkur eru á að sameiningin yrði á forsendum Alþýðuflokksins og útilokað er að allir úr hinum flokkunum sætti sig við að taka upp þá pólitík."