NOTE: This article is more than 5 years old.
11 nóvember 1998
/
Málefni íbúðalánasjóðs
Í Morgunblaðinu 11. nóvember 1997
Fyrir 18 mánuðum síðan sagði Húsnæðisstofnun upp þessum samningi með bréfi, dags. 14. apríl 1997, undirrituðu af Sigurði E. Guðmundssyni. Ekki komu fram viðbrögð frá Landsbankanum en 24. júní sl. óskaði Landsbankinn eftir að fá til vörslu eignir hins nýja Íbúðalánasjóðs samkvæmt 11. gr. laga um húsnæðismál. Þ.e. taka að sér verkefni sem Seðlabankinn hefur sinnt fyrir Húsnæðisstofnun. Þessu erindi verður svarað af stjórn Íbúðalánasjóðs sem tekur til starfa um áramót.
Árangurslausar viðræður
Undirbúningsnefnd Íbúðalánasjóðs óskaði eftir viðræðum við Landsbankann um hugsanlega verktöku Veðdeildar hjá Íbúðalánasjóði. Fundir voru haldnir með Birni Líndal framkvæmdastjóra í Landsbankanum þar sem óskað var eftir samningi með minni kostnaði en Húsnæðisstofnun hafði greitt fyrir þjónustuna. Loks sló Landsbankinn botninn í viðræðurnar með bréfi, dags. 28. október 1998. Þar var einungis boðið upp á óbreyttan samning Húsnæðisstofnunar til eins árs, en gefið til kynna að til greina kæmi að breyta kostnaðartölum að ári liðnu.
29. október hafnaði formaður undirbúningsnefndar, Gunnar S. Björnsson, bréflega tillögu Björns Líndal að framlengja samninginn um 12 mánuði.
Í kjölfarið sagði Landsbankinn upp starfsfólki sínu hjá Veðdeildinni. Þar var um að ræða starfsmenn Landsbankans og ber hann alla ábyrgð á þeim.
Ódýrari þjónusta
Það er markmið Íbúðalánasjóðs að veita ódýrari, skilvirkari og betri þjónustu en unnt er að veita samkvæmt núgildandi lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins. Liður í því er að endurskipuleggja verkefni sem Veðdeild hafði áður sinnt sem verktaki.
Í september óskaði bæjarstjórn Húsavíkur eftir því að aðsetur Íbúðalánasjóðs yrði á Húsavík. Við því var því miður ekki hægt að verða enda hafði starfsfólk Húsnæðisstofnunar fengið loforð um að það sæti að öðru jöfnu fyrir störfum hjá Íbúðalánasjóði og því ekki unnt að gera því að flytja til Húsavíkur.
Þessi afstaða kom fram í svari mínu við fyrirspurn á Alþingi í október. Jafnframt gat ég þess að unnt væri að færa verkefni sem Veðdeild hefði sinnt fyrir Húsnæðisstofnun út á land svo og önnur verkefni sem Íbúðalánasjóður þyrfti að láta vinna.
Í kjölfar þessa gáfu sig fram menn á Sauðárkróki og bentu á að þar væri góð aðstaða til að taka við verkefninu frá Veðdeildinni.
Niðurstaðan varð að stofnsetja undirdeild Innheimtusviðs Íbúðalánasjóðs á Sauðárkróki.
Með bréfi 7. október hafði undirbúningsnefndin óskað eftir því við Reiknistofu bankanna að fá að njóta þjónustu hennar hliðstætt og Veðdeildin hafði fengið gegnum Landsbankann. Þessu var svarað neitandi af Reiknistofu með bréfi 2. nóvember "enda vinnur Reiknistofan eingöngu fyrir eigendur sína."
Því var nauðugur einn kostur að semja við Búnaðarbankann á Sauðárkróki til þess að njóta þjónustu Reiknistofu bankanna.
Þessi lausn sparar árlega milli 20-30 milljónir króna fyrir viðskiptamenn Íbúðalánasjóðs.
Gengið hefur verið frá samningum við Búnaðarbankann svo og um þjónustu og húsnæði á Sauðárkróki.
Of síðbúin sinnaskipti
Þegar stjórnendur Landsbankans sáu að þeir höfðu misst af viðskiptum gripu þeir til undarlegra ráða.
Með bréfi 5. nóvember er boðið upp á viðræður um breyttan samning en það kom ekki til tals af bankans hálfu viku fyrr.
Í minnisblaði frá bankastjóra, dags. 6. nóvember, sem afhent var formanni undirbúningsnefndar er bankinn skyndilega tilbúinn að lækka Veðdeildarsamninginn um 27 milljónir króna. Þessi sinnaskipti Landsbankans komu því miður of seint. Búið er að ganga frá samningum um starfsemina á Sauðárkróki.
Ennfremur virðist Landsbankanum hafa verið eitthvað mislagðar hendur í samskiptum við starfsfólk bankans í Veðdeildinni en það segist, a.m.k. sumt, fyrst hafa frétt af uppsögnum sínum í fjölmiðlum.
Þrátt fyrir nokkuð mislukkaða framgöngu Landsbankamanna varðandi Veðdeildina vona ég að Íbúðalánasjóður og félagsmálaráðuneytið geti áfram átt góð viðskipti við Landsbankann. Samningar standa yfir við Samband banka og sparisjóða um að færa afgreiðslu húsbréfa, greiðslumat og veðmat til lánastofnana. Takist þeir samningar ekki verður sú þjónusta boðin út eða færð inn í starfsemi Íbúðalánasjóðs og þar á Landsbankinn hugsanlega tækifæri. Komi hins vegar ekki á sættanleg tilboð í þá þjónustu er hægt að veita hana hjá Íbúðalánasjóði.
Loks ber að nefna að Landsbankinn sýslar með fjármuni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í umboði félagsmálaráðuneytis.