NOTE: This article is more than 5 years old.
29 janúar 2001
/

Umsóknir um stöðu Hæstaréttardómara.


Umsóknir um stöðu Hæstaréttardómara



Hjörtur Torfason hæstaréttardómari mun láta af störfum frá 1. mars n.k. og hefur staða hans verið auglýst til umsóknar. Umsóknarfrestur rann út 25. janúar og voru umsækjendur sem hér segir:

Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður,
Hjördís Hákonardóttir, héraðsdómari,
Ingibjörg Benediktsdóttir, héraðsdómari,
Ingibjörg Rafnar, hæstaréttarlögmaður,
Jakob R. Möller, hæstaréttarlögmaður,
Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari og Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður.

Dómsmálaráðherra mun gera tillögu til forseta Íslands um stöðuveitinguna að fenginni umsögn Hæstaréttar um umsóknirnar.