NOTE: This article is more than 5 years old.
06 júní 2002
/

Dagpeningar starfsmanna á ferðalögum erlendis nr. 3/2002

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis á vegum ríkisins sem hér segir:

Almennir dagpeningar:
Gisting

Annað

Samtals
Bretland og Rússland
SDR

133

94

227
New York borg og Washington DC
SDR

139

82

221
Asía og Suður-Ameríka
SDR

136

110

246
Annars staðar


SDR

100

94

194
Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa:
Bretland og Rússland
SDR

85

60

145
New York borg og Washington DC
SDR

89

52

141
Asía og Suður-Ameríka
SDR

87

70

157
Annars staðar
SDR

64

60

124



Ákvörðun þessi gildir frá og með 1. júní 2002. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2001 dagsett 12. júní 2001.

Ennfremur er vakin athygli á umburðarbréfi nefndarinnar, þar sem nánar er kveðið á um tilhögun greiðslu dagpeninga til ríkisstarfsmanna. Umburðarbréfið ásamt auglýsingu ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er að finna á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: http://fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html


Reykjavík, 5. júní 2002

Ferðakostnaðarnefnd

Athugið að leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum, samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og Ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins vegna ferða á vegum launagreiðanda. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum.
Sjá upplýsingar um dagpeninga hjá ríkisskattstjóra og upplýsingar um dagpeninga - skattmat hjá ríkisskattstjóra.