Kynning á nýrri námskrá í netagerð
Til þeirra er málið varðar.
Kynning á nýrri námskrá í netagerð á vef menntamálaráðuneytisins
Menntamálaráðuneytið hefur birt drög að nýrri námskrá í netagerð á vef sínum, www.menntamalaraduneyti.is
Netagerð er löggilt iðngrein. Meðalnámstími í netagerð er 3 ár, 3 annir í skóla og 24 mánaða starfsþjálfun í fyrirtæki. Markmið námsins er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem netagerðarmenn fást við, þ.e. að sjá um hönnun, framleiðslu, viðhald og viðgerðir á veiðarfærum. Náminu lýkur með sveinsprófi sem veitir rétt til starfa og rétt til inngöngu í meistaraskóla.
Námskrárdrögin verða til kynningar á framangreindu vefsvæði næstu fjórar vikurnar eða til 4. desember 2002. Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda inn athugasemdir og ábendingar um námskrána í heild, eða einstaka þætti hennar, til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið [email protected]
Að loknu umsagnarferlinu mun ráðuneytið gera þær lagfæringar á námskránni sem nauðsynlegar teljast, staðfesta hana og senda til birtingar í Stjórnartíðindum. Námskráin verður að því loknu birt á námskrárvef ráðuneytisins.
Vinsamlega kynnið efni þessa bréfs fyrir félögum í samtökum yðar, svo og öðrum þeim er þér teljið það eiga erindi til.
(Nóvember 2002)