NOTE: This article is more than 5 years old.
27 janúar 2003
/
Nýr sendiherra Íslands í Kína
Nr. 4
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Eiður Guðnason sendiherra afhenti þann 27. janúar, Jiang Zemin forseta Alþýðulýðveldisins Kína, trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands. Athöfnin fór fram í Alþýðuhúsinu Mikla við torg hins himneska friðar í Peking.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 27. janúar 2003