NOTE: This article is more than 5 years old.
27 janúar 2004
/

Tegundartilfærsla á löngu og keilu

Fréttatilkynning

um breytingu á tegundartilfærslu í löngu og keilu.

Ráðuneytið hefur í dag gefið út reglugerð sem rýmkar nokkuð heimild til tegundartilfærslu við veiðar á löngu og keilu. Eftir breytinguna takmarkast heimild til tegundartilfærslu í þessum tegundum ekki við 2% af heildaraflaverðmæti botnfiskaflamarksins. Heildarheimildin til

tegundartilfærslu takmarkast eftir sem áður við 5% af heildaraflaverðmætinu botnfiskaflamarksins.

sjá reglugerð

Sjávarútvegsráðuneytið, 27. janúar 2004.