NOTE: This article is more than 5 years old.
19 febrúar 2004
/

Heilbrigðismálaráðherra fundar með Eyjamönnum

Jón Kristjánsson, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, heldur fund með bæjarstjórnarmönnum í Vestmannaeyjum í dag, fimmtudaginn 19. febrúar. Rætt verður um stöðu heilbrigðismála í Eyjum. Síðar um daginn efnir ráðherra til opins fundar um heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum. Fundurinn verður á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum og er öllum opinn. Hann hefst kl. 15:00