NOTE: This article is more than 5 years old.
25 mars 2004
/

Nýr skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.


Jónína s. Lárusdóttir
Jónína S. Lárusdóttir

Jónína S. Lárusdóttir hefur verið skipuð skrifstofustjóri almennrar skrifstofu í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.

Jónína hefur starfað í viðskiptaráðuneytinu frá því í október 2000 sem deildarsérfræðingur á sviði fjármagnsmarkaðar.

Hún lauk lagaprófi frá HÍ vorið 1996 og framhaldsnámi við London School of Economics í Lundúnum haustið 2000.

Jónína er fyrsta konan til að gegna stöðu skrifstofustjóra í ráðuneytunum.