Dagur fjölskyldunnar - opnun fjölskylduvefs

Ágætu gestir.
Það er mér sönn ánægja að vera með ykkur hér á alþjóðlegum degi fjölskyldunnar. Sameinuðu Þjóðirnar hafa helgað fjölskyldum um víða veröld þennan dag og nú er áratugur liðinn frá ári fjölskyldunnar - 1994
Við hátíðleg tækifæri sem þessi er oft til þess vitnað og áhersla á það lögð að fjölskyldan sé hornsteinn íslensks samfélags. Það er ekki ofmælt, því fjölskyldan leggur grunninn að heilbrigðum tilfinningaþroska hvers einstaklings, hún er uppspretta siðferðisgilda og lífsreglna, hún mótar og fræðir og leggur grunn að farsælu lífi hvers einstaklings. Foreldrum ber því að styðja við bakið á börnum sínum og ala þannig upp að þeir verði sjálfstæðir og ábyrgir einstaklingar tilbúnir til að lifa og starfa samkvæmt grunngildum hins lýðræðislega samfélags.
Í samfélagi örra breytinga hafa eldri hugmyndir um kjarnafjölskylduna vikið fyrir breyttum lífsviðhorfum. Fjölbreyttari sambýlisform er að finna innan samfélagsins en áður og sambýlisform hvers einstaklings getur jafnvel tekið breytingum á lífsskeiði hans.
Í hraða nútímasamfélagsins er hættan sú að samfélagið þróist meir og meir í átt til sérhyggju og hagsmunagæslu, fyrir þá sem betur standa fjárhagslega og félagslega. Við þessu verður að bregðast því við megum aldrei missa sjónar á þeim grunngildum samhjálpar og samfélagslegrar ábyrgðar sem hafa verið hornsteinar þess velferðarsamfélags sem við höfum byggt hér upp. Við munum hins vegar alltaf búa í samfélagi þar sem þarfir fjölskyldnanna verða mismunandi og sennilega eins margbreytilegar eins og þær eru margar. Því eigum við ekki að reyna að breyta heldur á það að vera hlutverk hins opinbera að móta samfélag þar sem allir hafa jöfn tækifæri óháð efnahag, búsetu, kyni eða stöðu í samfélaginu.
Gífurleg tækifæri eru fólgin í þeim upplýsingabrunnum sem fjarskipti nútímans hafa opnað okkur aðgang að. Þessi nýja auðlind verður að vera fyrir okkur öll.
Tæknileg framþróun hefur gert það að verkum að heimilið, vagga fjölskyldunnar, er allt í senn, kennslustofa, vinnustaður, listasafn, fréttamiðill og vísindaver, svo fátt eitt sé nefnt.
Tilgangurinn með nýja fjölskylduvefnum sem hér er verið að opna er einmitt sá að auðvelda aðgengi almennings að upplýsingum á Netinu er varða málefni fjölskyldunnar. Með því að hafa tengla inn á aðrar síður sem fjalla um málefni fjölskyldunnar má segja að vefsíðan fjolskylda.is sé inngangurinn þar sem reynt er að draga saman á einn stað það efni og þá þjónustu sem finna má á veraldarvefnum um málefni fjölskyldunnar.
Á það skal lögð áhersla, að vefur eins og þessi er aldrei tilbúinn eða fullmótaður. Hér er um þróunarverkefni að ræða og til að vefurinn þjóni tilgangi sínum sem best verður hann að vera í sífelldri endurskoðun. Ástæðan er ekki síst sú að við lifum á tímum mikilla umbreytinga þar sem breyttir lífshættir og ný gildi fela í sér nýja möguleika og ný tækifæri fyrir fjölskylduna.
Ég vil að endingu þakka starfsfólki fjölskylduskrifstofu ráðuneytisins fyrir vel unnið starf og tel að á engan sé hallað þó ég nefni sérstaklega Björgu Kjartansdóttur deildarsérfræðing, er ritstýrði vefnum og Arnar Pálsson vefstjóra en þau hafa borið hitann og þungan af þessu starfi.