NOTE: This article is more than 5 years old.
19 maí 2004
/

Útskrift úr Stóriðjuskólanum


Útskrift úr Stóriðjuskólanum
Útskrift úr Stóriðjuskólanum

Ágætu nemendur, góðir samkomugestir.

Allt frá upphafi byggingar álvers í Straumsvík á 7. áratugnum hefur það haft mikla þýðingu fyrir íslenskt samfélag. Nú liggur fyrir að innlend álframleiðsla muni stóraukast á næstu árum en allt frá miðjum síðasta áratug nýliðinnar aldar hefur þróunin verið ör í orkufrekum iðnaði með stækkun álversins á Grundartanga, stækkun álvers Alcan hér í Straumsvík og með tilkomu nýs álvers á Reyðarfirði. Allar þessar framkvæmdir leggja gífurlega mikið til íslensks atvinnulífs og þróun síðustu ára hefur leitt til aukinnar hlutdeildar áliðnaðar í innlendri verðmætasköpun sl. áratug.

Með þeim framkvæmdum sem þegar eru hafnar og fyrirsjáanlegar eru á næstu árum í innlendum áliðnaði er ljóst að hlutdeild áliðnaðar í verðmætasköpun mun aukast stórlega á komandi árum en þúsundir einstaklinga og hundruð fyrirtækja koma að þeim framkvæmdum á einn eða annan hátt.

Starfsmenn Alcan á Íslandi eru um 500 talsins og verslun fyrirtækisins á vörum og þjónustu skiptir gríðarlega miklu máli fyrir nálæg sveitarfélög. Auk þess leggur Alcan mikið til samfélagsins m.a. í formi styrkja til íþróttafélaga og góðgerðarsamtaka, ásamt því að huga að umhverfinu með því að leggja fé til skógræktar og ýmissa umhverfisrannsókna. Þannig er fyrirtækið ekki einungis vinnustaður sem með framleiðslu sinni eykur verðmætasköpun í landinu heldur einnig beinn aðili að því samfélagi sem það heyrir til og er það framlag ekki síður mikilvægt.

Útskrift úr StóriðjuskólanumStóriðjuskólinn hefur nú verið starfræktur hjá Alcan á Íslandi frá árinu 1998 eða í ein 6 ár. Á þeim tíma hafa um 120 starfsmenn útskrifast úr skólanum er til merkis um ágæti skólans þá hefur aðeins einn starfsmaður hætt störfum eftir að hafa lokið námi við skólann og hvarf hann til áframhaldandi náms.

Íslenska álfélagið hefur um árabil lagt mikla áherslu á starfs- og símenntun og á hverju ári skipta námskeiðsstundir starfsmanna tugum þúsunda. Í þessu öfluga fræðslustarfi ber Stóriðjuskólann hæst og hefur hann vakið verðskuldaða athygli þeirra sem koma að starfsmenntun í atvinnulífinu. Þegar starfsmenntaverðlaun Stafsmenntaráðs félagsmálaráðuneytisins og Menntar – samstarfsvettvangs atvinnulífs og skóla, voru veitt í fyrsta sinn árið 2000 af forseta Íslands, varð Alcan á Íslandi fyrir valinu í flokki fyrirtækja.

Starfsmenntaverðlaunin eru veitt árlega til þeirra aðila sem eru að vinna framúrskarandi starf á sviði starfsmenntamála. Að ÍSAL skuli hafa verið valið fyrst fyrirtækja til að veita þessum verðlaunum viðtöku segir meira en mörg orð. Þess má að auki geta að þegar unnið var að þróun náms við Stóriðjuskólann veitti Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins 1,5 milljóna króna styrk til þess verkefnis. Þetta fyrirkomulag náms, að starfsmenn sæki skóla sem vinnustaður þeirra rekur, hefur sannarlega sýnt gildi sitt hér í Straumsvík. Á því hagnast allir hlutaðeigandi, starfsmaðurinn eykur kunnáttu sína og færni og fyrirtækið fær hæfari og ánægðari starfsmann. Innihald námsins er sérsniðið að þörfum fyrirækisins og fyrirkomulagið er útfært út frá aðstöðunni á vinnustað. Útskrift úr StóriðjuskólanumStarfsmaðurinn og nemandinn, sem í þessu tilfelli er sami einstaklingurinn, lærir í því umhverfi þar sem hann er vanur að starfa, í stað þess að sækja þekkingu sína annað og eiga svo eftir að færa þá þekkingu yfir á vinnustaðinn með tilheyrandi starfsþjálfun.

Tengsl atvinnulífs og menntunar verða varla meiri en hér um ræðir en oft er nefnt að á þau tengsl vanti nokkuð. Sterkustu meðmæli þessa fyrirkomulags er sú staðreynd sem áður er getið að aðeins einn starfsmaður af 120 sem lokið hafa námi við skólann hefur horfið til annarra starfa.

Það er með sérstakri ánægju sem ég tek þátt í þessari athöfn hér og ég óska ykkur útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann. Jafnframt óska ég fyrirtækinu allra heilla í starfsemi sinni.