List án landamæra

Ágætu vorhátíðargestir.
Það er mér mikil gleði að vera viðstaddur þessa vorhátíð Fjölmenntar og lokahátíð Listar án landamæra. Hér er samankominn hópur fólks sem hefur látið að sér kveða á ýmsum sviðum mannlífsins og jafnframt verið öðrum góð fyrirmynd í lífi og starfi.
Stofnun Fjölmenntar markaði mikið framfaraspor í fræðslumálum fullorðinna fatlaðra á Íslandi. Forveri Fjölmenntar var fullorðinsfræðsla fatlaðra sem starfrækt hafði verið á vegum menntamálaráðuneytisins. Í mars 2002 gerðu Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands samning við ráðuneytið um að taka að sér þá starfsemi og komu þau á fót sjálfseignarstofnun sem starfar samkvæmt skipulagsskrá.
Samningurinn er til fimm ára. Stefnuskrá Fjölmenntar er að mínu viti afar metnaðarfull og ber krafti og áræði þeirra, sem að hafa komið, fagurt vitni. Fjölmennt sækir rætur í alþjóðlegar samþykktir, svo sem grunnviðmið Sameinuðu þjóðanna, Salamanca-yfirlýsinguna og markmiðsgrein laga um málefni fatlaðra. Hér er því lagt upp með að starfið takið mið af því sem best er gert á þessu sviði og er það vel. Fjölmennt er ætlað að bjóða upp á fjölþætta símenntun og ráðgjöf í þeim tilgangi að auka lífsgæði og almenna lífsleikni þeirra sem sækja þjónustu til hennar. Framkvæmd þjónustunnar byggir á námskeiðshaldi þar sem lögð er áhersla á almennt námskeiðshald, ráðgjöf og samstarf við aðrar fræðslustofnanir á vettvangi fullorðinsfræðslu.
Til að vinna sínum hugmyndum framrás hefur Fjölmennt haft mikinn metnað við að veita góða þjónustu sem hentar öllum og stenst samanburð við það sem best hefur gefist. Til að það sé mögulegt vinnur Fjölmennt að öflugu gæðastarfi sem tekur tillit til óska, vona og þarfa notenda.
Starfsemi Fjölmenntar er því í stöðugri framþróun og er ekki annað að sjá en að hugmyndir bjartsýnustu manna verði innan tíðar að veruleika. Um þetta vitnar meðal annars fjöldi nemenda sem voru á skólaárinu 2003–2004, eða um 700, bæði á höfuðborgarsvæðinu og í samstarfsverkefnum með Geðhjálp, Fjölmennt á Akureyri, Selfossi og fjarþjónustu Fjölmenntar á Norðurlandi vestra svo nokkur dæmi séu tekin.
Ágætu vorhátíðargestir.
Á þessari hátíð er einnig haldið lokahóf Listar án landamæra en tilefnið var Evrópuár fatlaðra 2003 og 10 ára afmæli Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Að listahátíðinni stóðu einnig Landssamtökin Þroskahjálp, Fjölmennt, Fullorðinsfræðsla fatlaðra, Sérsveit Hins Hússins og vinnustofan Ásgarður. Ógetið er einnig þeirra fjölmörgu samtaka og einstaklinga sem lögðu henni lið. Á þessari listahátíð sem var veisla fyrir hug og hjarta allra sem að komu, opnuðust einnig augu almennings fyrir því hversu mikilsverður auður liggur oft ónýttur hjá því fatlaða fólki sem hér um ræðir. Árangur þessarar listahátíðar er sá, að list fólks með þroskahömlun varð sýnileg og áþreifanleg viðbót í hina fjölbreyttu listaflóru á Íslandi þar samstarf fatlaðra og ófatlaðra var í brennidepli, án landamæra.
Ég hef hrifist með ykkur, og af ykkur á þessu ári sem Listahátíðin hefur staðið. Ég hef orðið var við kraftinn, trúna og metnaðinn sem hefur einkennt atburði listahátíðarinnar og af því verður enginn ósnortinn. Ég þakka ykkur öllum fyrir framlag ykkar til ársins.
Ég óska ykkur einnig góðrar skemmtunar hér í kvöld og megi gleði og ánægja fylgja ykkur um ókomna tíð.
Myndir:
