NOTE: This article is more than 5 years old.
02 júní 2004
/

Gjaldskrár tannlækna skulu vera sýnilegar

Samkeppnisstofnun hefur gefið út reglur um verðupplýsingar vegna þjónustu tannlækna. Samkvæmt þeim eiga að liggja frammi hjá tannlæknum gjaldskrár þar sem fram kemur verð á aðgerðaliðum og ber að hafa útdrátt úr gjaldskrá á áberandi stað á biðstofu tannlækna. Reglurnar taka gildi 1. september nk.

pdf-takn Reglur Samkeppnisstofnunar.