Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva 8. október 2004
Fréttatilkynning
Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra ávarpaði aðalfund Samtaka fiskvinnslustöðva í dag 8. október. Greindi ráðherrann þar frá ferð sinni til Seattle og Alaska þar sem hann veitti viðskiptasendinefnd frá Íslandi forystu. Ráðherra stiklaði á stóru um ýmislegt það sem fyrir augu og eyru bar í ferðinni. Lagði hann mikla áherslu á að sérstaða okkar Íslendinga færi minnkandi á sviði sjávarútvegs, enda byggjum við í alþjóðlegu umhverfi þar sem uppýsingar flytu hindrunarlítið á milli aðila og væru Íslendingar sjálfir stórir útflytjendur á sviði þekkingar um allt það er liti að sjávarútvegi. Lagði ráðherrann því áherslu á að greinin yrði að búa við stöðugt rekstrarumhverfi hér heima, enda mættu fyrirtækin ekki við því í alþjóðlegri samkeppni að eyða dýrmætum kröftum sínum í að kljást við heimatilbúin vandamál.
Ráðherrann gerði grein fyrir hlutverki og stöðu AVS -rannsóknasjóðsins í sjávarútvegi. Sjóðurinn hefur nú starfað í tvö ár og eru þegar komin fram jákvæð áhrif úthlutana úr honum og eru sjóðnum ætlaðar 200 milljónir króna í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2005. Sem dæmi um nýsköpunarverkefni sem framlög hafa fengist til úr sjóðnum er vinnsla á íslenskum sæbjúgum sem stendur fyrir dyrum á Grundarfirði. Sæbjúgu hafa ekki verið nýtt hér á landi áður en er þekkt matvara meðal margra Asíuþjóða. Einnig tiltók sjávarútvegsráðherra verkefni sem unnið er af Marorku og felst í hönnun á búnaði til að draga úr orkunotkun og mengun fiskiskipa.
Ráðherra rakti ítarlega framvindu í íslensku fiskeldi, en miklar vonir eru bundnar við að eldi sjávarfiska geti orðið öflugur hluti íslensks sjávarútvegs. Hvað fiskvinnsluna varðar getur eldið tryggt stöðugt framboð af verðmætum vinnslufiski.
Í ræðunni gerði Árni grein fyrir þeirri vá sem sjávarútveginum geti stafað af áróðri öfgasamtaka. Í þessu sambandi varðandi efnainnihald í sjávarfangi. Greindi hann frá því að við yrðum alltaf að vera skrefi á undan með upplýsingar og fræðslu, þekkingarmiðlun væri okkar vopn í þessari baráttu. Greindi hann frá því að ráðuneytið hafi nú þegar látið fara fram vinnu í þessum tilgangi og í dag yrðu birtar á heimasíðu sjávarútvegsráðuneytisins og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins niðurstöður mælinga sem sýna að mengunarefni í íslensku sjávarfangi eru í nær öllum tilvikum undir þeim mörkum sem sett hafa verið.
Í lok ræðunnar sagði sjávarútvegsráðherra: „Annað sem styrkir stöðu okkar er alþjóðleg viðurkenning á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem gefur okkur forskot á margar samkeppnisþjóðir okkar, trúverðugleiki kerfisins er orðinn hluti af markaðssetningu stórfyrirtækja. Lokaorð mín eru því; gerum okkur grein fyrir ógnunum en spilum framliggjandi sókn á fiskmörkuðunum."
Sjávarútvegsráðuneytið
8. október 2004