NOTE: This article is more than 5 years old.
26 nóvember 2004
/

Opnun þjónustukjarna fyrir fatlaða


Frá opnun þjónustukjarna fyrir fatlaða í Þorlákshöfn 25. nóvember 2004
Opnun þjónustukjarna fyrir fatlaða í Þorlákshöfn 25. nóvember 2004

Hljóðskrá (ræða ráðherra)Upptaka frá ræðu félagsmálaráðherra:
Opnun þjónustukjarna fyrir fatlaða
(mp3-snið / 1MB)

Ágætu tilheyrendur.

Það er okkur öllum sérstakt ánægjuefni að í dag opnar nýr þjónustukjarni fyrir fatlaða hér að Selvogsbraut 1 í Þorlákshöfn. Með tilkomu hans stígur Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Suðurlandi enn eitt framfaraskrefið í þá átt að þjónusta við fatlaða verði fjölbreyttari og sveigjanlegri.

Mér finnst við hæfi að rifja upp að þjónusta við fatlaða byggir á þeirri hugsun að þeim sé sýnd tilhlíðileg virðing og tillitssemi eins og öðrum borgurum.   Markmiðið er að þeir geti eins og kostur er búið við hliðstæð lífsskilyrði og lífskjör og ófatlaðir.

Hlutverk svæðisskrifstofa fatlaðra er að auðvelda fötluðum að stjórna og móta eigið líf og aðstæður.  Eftir fremsta megni er reynt að fara að óskum þeirra sem eiga að njóta þjónustunnar.  Að minnsta kosti einu sinni á ári eru aðstæður endurmetnar og hugað að því hvort þjónusta sé í samræmi við þarfir.

Lögð er áhersla á að þjónustan sé sem mest miðuð við þarfir hlutaðeigandi einstaklings, að virtur sé réttur til einkalífs og tekið tillit til félagslegra aðstæðna hvers og eins.  Markmiðið er að tiltæk úrræði séu jafn fjölbreytt og einstaklingarnir sem verið er að þjóna.

Svæðisskrifstofu Suðurlands hefur að mínu mati tekist prýðilega að vinna í samræmi við þessa hugmyndafræði.   Skrifstofan getur nú boðið upp á ýmsa búsetukosti. Íbúðir, íbúðir með sameiginlega aðstöðu, sambýli og heimili fyrir börn.  Þótt búsetukostirnir séu mismunandi er byggt á sama grundvallar viðhorfinu um rétt einstaklingsins til að móta og hafa áhrif á líf sitt og tilveru.

Hér á Selvogsbrautinni verður einstaklingum í íbúðum veitt þjónusta sem og þeim sem þurfa dagþjónustu eða eru starfsmenn á vernduðum vinnustöðum. Hér eru fimm íbúðir og er nú þegar búið í fjórum þeirra. Allar þessar íbúðir eru í eigu Sveitarfélagsins Ölfuss og eru hinar glæsilegustu. Afar góð samvinna hefur tekist á milli svæðisskrifstofunnar og sveitarfélagsins varðandi alla skipulagningu og framkvæmd þessa verkefnis og sýnir það hve miklu hægt er að áorka þegar þjónustuaðilar taka höndum saman.

Það er ljóst að vel muni fara um væntanlega íbúa. Sveitarfélagið stendur traustum fótum með öfluga almenna félagsþjónustu.  Hér ríkir menningarsamfélag sem sómi er af. Það hlýtur því að vera eftirsóknarvert og gefandi fyrir alla íbúa hér á Selvogsbrautinni að taka þátt í því að auðga og styrkja samfélagið þar sem allir hafa hlutverk. Allt hefur þetta því tilgang og stuðlar að því að samfélagið styrkist til að það geti veitt öllum þegnum sínum þau lífsgæði sem nauðsynleg eru til bjartrar og hamingjuríkrar framtíðar.

Ágætu tilheyrendur.

Starfsemi þessa þjónustukjarna sem hefur formlega starfsemi sína hér í dag er glæsileg viðbót við þá þjónustu sem fatlaðir njóta hér á Suðurlandi. Við munum þó ekki láta hér staðar numið. Félagsmálaráðuneytið hefur nýverið gert samninga við þrjú sveitaheimili hér á Suðurlandi um þjónustu við fatlaða. Markmiðið er að skapa þeim styrkari starfsgrundvöll til framtíðar.

Þann 3. desember næstkomandi mun verða tekið í notkun glæsilegt viðbótarrými við vinnu- og hæfingarstöð Svæðisskrifstofu Suðurlands á Selfossi.  Með þeirri viðbót er verið að mæta brýnni þörf fjölfatlaðra.  Samtímis er bætt aðstaða til framleiðslu á handunnum munum.

Fyrirhugaðar eru miklar breytingar á húsnæðismálum fatlaðra hér á Suðurlandi.  Íbúar á elsta sambýlinu, sem nú er til húsa að Árvegi 8 á Selfossi, munu flytja í nýtt húsnæði um mitt næsta ár 2005.

Einnig er áætlað að reisa nýtt hús yfir þá starfsemi sem hefur verið við Álftarima 2 á Selfossi.  Ákveðið hefur verið að því verði fundinn staður í Hveragerði. Þetta er liður í þeirri stefnu svæðisskrifstofunnar að þjónusta við fatlaða verði veitt sem víðast á svæðinu. Loks má geta þess að í næstu framtíð verður fleiri fötluðum sem það kjósa gert kleift að búa í eigin íbúð.

Það má því segja að bjart sé framundan í þjónustu við fatlaða á Suðurlandi.

Að þessum orðum sögðum vil ég þakka öllum hlutaðeigandi fyrir þeirra framlag til þessa þjónstukjarna sem við erum að opna í dag.  Ég óska íbúum, bæði núverandi og þeim sem koma til með að flytjast hingað, velfarnaðar og vil láta í ljósi þá von mína að þeir geti átt hér ánægjulega og gæfuríka búsetu.