NOTE: This article is more than 5 years old.
02 desember 2004
/

Undirskrift samnings um Framtíð í nýju landi

Góðir gestir!

og alveg sérstaklega unga kynslóðin, sem hér er stödd, og þetta verkefni beinist að.

Það er ekki amalegt að fá tækifæri til að vera hér í Höfða á fullveldisdaginn og ýta úr vör Framtíð í nýju landi. Þessu verkefni sem hefur verið í undirbúningi um all langt skeið. Það skiptir okkur Íslendinga miklu máli að búa þannig um hnútana að æskan fái tækifæri til að dafna og þroskast og verða að nýtum þegnum. Einkum og sér í lagi er mikilvægt að börnum og ungmennum af erlendu bergi auðnist að festa hér rætur, aðlagast, efla menntun sína og félagshæfni í íslensku samfélagi. En það er einmitt markmið verkefnisins. 

Á sama tíma megum við ekki gleyma því að þau eiga sinn bakgrunn frá heimalandi, menningu og móðurmál. Við viljum stuðla að því að þau glati ekki þessari þekkingu og reynslu og beri gæfu til að miðla okkur henni á sem fjölbreyttastan hátt.

Það er í rauninni merkilegt hve margir koma að þessu viðfangsefni og hafa lagt því lið: Tvö ráðuneyti, Reykjavíkurborg, Velferðarsjóður barna, Rauði krossinn og Alþjóðahúsið. Og síðast en ekki síst hefur kraftur Anh-Dao verið lífæðin í undirbúningnum og hennar framlag verður seint ofmetið. Ég er sannfærður um að verkefnið Framtíð í nýju landi verður farsælt og mun koma ungu fólki af asískum uppruna til góða. Ef vel tekst til getum við vænst þess að ungt fólk víðar að komið fái tækifæri til að taka þátt í því síðar. 

Það fer ljómandi vel á því að Alþjóðahúsið hýsi Framtíð í nýju landi. Framtíðin er þar í góðum höndum og í fjölmenningarlegu umhverfi sem æskan mun án efa kunna vel að meta. 

Ég óska þátttakendum, verkefnisstjóranum og stjórn Framtíðar í nýju landi velfarnaðar.