Opnun neyðarvistunar að Stuðlum

Ágætu gestir!
Eins og ykkur er flestum kunnugt um, gegna Stuðlar lykilhlutverki í meðferðarkerfi ríkisins fyrir börn og unglinga. Hér á Stuðlum hefst meðferðarvinna með þá unglinga, sem ekki hefur tekist að veita hjálp með þeim úrræðum, sem barnaverndarnefndir eiga að hafa tiltæk samkvæmt barnaverndarlögum. Meginhlutverk Stuðla er að greina vanda unglinganna, því ekki er allt sem sýnist. Hegðunarröskun, vímuefnaneysla og tilfinningavandi unglinga, geta átt sér margháttaðar orsakir sem ekki liggja í augum uppi. Slík greining er hins vegar undirstaða þess að unnt sé að mæta meðferðarþörf einstaklingsins með viðeigandi hætti. Það er af þessum ástæðum sem gera verður ríkar kröfur til faglegrar getu Stuðla og á því sviði hefur stofnunin risið undir væntingum.
Stuðlar hafa á að skipa fagfólki í fremstu röð á sínu sviði, svo segja má að stofnunin sé móðurskipið í meðferðarkerfi ríkisins fyrir unglinga. Það er á Stuðlum sem grundvöllurinn er lagður fyrir áframhaldandi vinnu með einstaklinginn, hvort sem hún fer fram í framhaldsmeðferð á einhverju langtímameðferðarheimili Barnaverndarstofu eða í faðmi fjölskyldunnar að lokinni dvöl á Stuðlum.
Ég vil sérstaklega lýsa yfir ánægju með þá áherslu sem lögð er á fjölskyldusamvinnu og ráðgjöf við foreldra á Stuðlum. Reynslan kennir að forsenda árangursríkrar meðferðar er eftirfylgd og virkni foreldranna til að varðveita þann árangur sem meðferðin hefur skilað.
|
|
|
|
Hin nýja aðstaða sem nú er tekin í notkun á lokaðri deild Stuðla gjörbreytir öllum vinnuaðstæðum starfsfólks á neyðarvistuninni. Hún eykur öryggi unglinganna sjálfra, en dæmin sanna að sjálfseyðandi hegðun getur ógnað velferð þeirra með þeim hætti að ekki verður aftur tekið. Og vonandi gerir hún mögulegt að ekki þrufi að koma aftur til þess, að hafna þurfi beiðnum um vistun unglinga sem eru í bráðri hættu.
Ég óska starfsfólki Stuðla, og lokuðu deildinni sérstaklega, okkur öllum sem hér eru og síðast en ekki síst, unglinunum og foreldrum þeirra, innilega til hamingju með daginn!



