NOTE: This article is more than 5 years old.
08 desember 2004
/

Opnun viðbyggingar við VISS


Opnun viðbyggingar við VISS
Opnun viðbyggingar við VISS

Hljóðskrá (ræða ráðherra)Upptaka frá ræðu félagsmálaráðherra:
Opnun viðbyggingar við VISS
(mp3-snið / 600KB)

Ágætu tilheyrendur.

Í dag á alþjóðadegi fatlaðra er mér það sérstakt gleðiefni að vera við opnun viðbótarhúsnæðis við VISS, vinnu- og hæfingarstöð að Gagnheiði 39 hér á Selfossi.

Það má segja að vernduð vinna eigi sér nokkuð langa sögu á Suðurlandi og það má með sanni segja að hér hafi frumkvöðlastarf hafist í vinnumálum fatlaðra á Íslandi. Árið 1982 varð til fyrsti vísir að vernduðum vinnustað í kjallaranum í sambýlinu við Árveg 8. Starfsemin jókst og dafnaði þannig að nokkrum árum síðar þurfti að flytja starfsemina um set og flutti hún þá í húsnæði í svokölluðum Iðngörðum við Gagnheiði. Og árið 1990 flutti vinnustofan í eigið húsnæði við Gagnheiði 39.

Árið 1997 var síðan útbúin aðstaða fyrir fjölfatlaða og hafa fimm einstaklingar notið þessarar aðstöðu. Síðar bættist við hæfing og dagvist og oft hefur því bekkurinn verið þröngt setinn.

Nú fögnum við því að aðstæður hafa gjörbreyst og allir þeir sem þörf hafa fyrir sérhæfða dagþjónustu hér á Selfossi fá hana nú í þessu glæsilega húsnæði.

Þau verkefni, sem unnið hefur verið að á VISS, hafa allt frá byrjun starfseminnar verið afar mismunandi. Staðurinn hefur ætíð notið mikillar velvildar og skilnings í bæjarfélaginu og hafa mörg fyrirtæki á svæðinu stofnað til samstarfs við VISS. Vegna þess hversu störfin hafa verið fjölbreytt hefur verið mögulegt að bjóða stórum hópi fatlaðra vinnu við hæfi. Má til dæmis nefna verkefni við pökkun, flokkun og frágang umbúða og hafa þau verið unnin fyrir fyrirtæki eins og Mjólkurbú Flóamanna, Húsasmiðjuna, Set og Víkurprjón. Einnig hafa verið unnin verkefni fyrir Danco og Karton.

Opnun viðbyggingar við VISS

Opnun viðbyggingar við VISS  Opnun viðbyggingar við VISS Opnun viðbyggingar við VISS Opnun viðbyggingar við VISS Opnun viðbyggingar við VISS
       
Á VISS hefur einnig verið starfrækt listasmiðja, þar sem búnir eru til listmunir úr leir, basti, tré og ofið úr ull og bómul. Þessar vörur eru síðan boðnar til sölu í Gallerí VISS sem er verslun staðarins. Vörumerkið er orðið þekkt og á VISS marga góða og trygga viðskiptavini víða um land sem gera það að árvissum atburði að koma fyrir jólin og versla í Galleríinu.

Til viðbótar dagþjónustunni sem boðið er upp á á VISS hefur Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra á Suðurlandi í samstarfi við Mjólkurbú Flóamanna staðið saman að atvinnuuppbyggingu fatlaðra með starfrækslu endurvinnslustöðvar sem vinnur pappa sem fellur til frá Mjólkurbúinu.

Augljóst er því að hér á Selfossi er unnið sérstaklega metnaðarfullt starf í atvinnumálum fatlaðra. Hér eru til staðar fjölbreytt þjónustuúrræði sem geta komið til móts við mismunandi þarfir frá einum tíma til annars.

Í hæfingunni er unnið að því að viðhalda og efla andlega og líkamlega færni þeirra sem eru fjölfatlaðir og auka þar með vellíðan þeirra og lífsgæði.

Í dagdvölinni er fötluðum, sem búa við minnkaða færni og úthald sökum aldurs og/eða heilsubrests, veitt þjónusta.

Í starfshæfingunni er meðal annars unnið að þjálfun félagsfærni og loks má geta þess að nokkrir fatlaðir starfsmenn hér á VISS eru jafnframt í vinnu á almennum vinnumarkaði.

Það má því með sanni segja að VISS sé eins konar þjónustumiðstöð í atvinnumálum fatlaðra á Suðurlandi.

Ágætu tilheyrendur.

Heildarstærð viðbyggingarinnar er rétt tæpir 300m2 og mun þessi viðbót við þjónusturými VISS stórauka möguleika Svæðisskrifstofu Suðurlands til enn frekara frumkvæðis og nýsköpunar í vinnumálum fatlaðra á Suðurlandi og hljóta þessi spor einnig að vera hvatning fyrir aðra.

Ég vil jafnframt láta þess getið að mikil þróun á sér einnig stað í búsetumálum fatlaðra hér á Suðurlandi. Félagsmálaráðuneytið og svæðisskrifstofan vinna nú ötullega að því að bæta lífsgæði þeirra sem búa á sambýlum á svæðinu. Gert er ráð fyrir að íbúar á elsta sambýlinu á Suðurlandi sem nú er til húsa að Árvegi 8 munu flytja í nýtt húsnæði um mitt ár 2005. Jafnframt á að reisa nýtt hús fyrir þá starfsemi sem hefur verið við Álftarima 2 á Selfossi og verður því fundinn staður í Hveragerði. Þetta er liður í þeirri stefnu að byggja upp þjónustu við fatlaða sem víðast á svæðinu. Loks má geta þess að unnið er að því að svæðisskrifstofan geti boðið upp á verulega aukningu á þjónustu við þá sem búa í sjálfstæðri búsetu.

Ég óska Sunnlendingum öllum til hamingju með þetta húsnæði og megi gæfa og gleði fylgja þeim sem hér koma til með að fá þjónustu.





Opnun viðbyggingar við VISS
Opnun viðbyggingar við VISS

Opnun viðbyggingar við VISS
Opnun viðbyggingar við VISS

Opnun viðbyggingar við VISS
Opnun viðbyggingar við VISS

Opnun viðbyggingar við VISS
Opnun viðbyggingar við VISS

Opnun viðbyggingar við VISS
Opnun viðbyggingar við VISS

Opnun viðbyggingar við VISS
Opnun viðbyggingar við VISS

Opnun viðbyggingar við VISS
Opnun viðbyggingar við VISS