NOTE: This article is more than 5 years old.
13 apríl 2005
/

Málþing um starfsendurhæfingu

Dagana 14. og 15. apríl stendur félagsmálaráðuneytið fyrir málþingi um starfsendurhæfingu, í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og tryggingastofnun ríkisins. Málþingið ber yfirskriftina Breaking the Barriers – New Thoughts in Organizing Vocational Rehabilitation and Other Interventions og er hluti af norrænu samstarfsverkefni sem styrkt er af Norrænu ráðherranefndinni. Málþingið verður haldið á Hótel Loftleiðum og hefst kl. 09:00 fimmtudaginn 14. apríl.

Árni Magnússon félagsmálaráðherra opnar málþingið og skiptist dagskráin í tvo megin þætti. Fyrri daginn verður áhersla á stöðu starfsendurhæfingu í dag og mun fulltrúar frá norrænu löndunum kynnt hana fyrir þátttakendum. Síðari daginn fer fram hópavinna þar sem unnið er útfrá fjórum meginþemum.

Fundarstjórar eru Þór Þórarinsson, félagsmálaráðuneytið og Guðrún Sigurjónsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Málþinginu lýkur kl. 16:00, föstudaginn 15. apríl með ávarpi Jóns Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.