NOTE: This article is more than 5 years old.
01 maí 2005
/
Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands. Auglýsing nr. 2/2005
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
| 1. | Gisting og fæði í einn sólarhring |
kr. |
16.500 |
|
| 2. | Gisting í einn sólarhring |
'' |
10.800 |
|
| 3. | Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag |
'' |
5.700 |
|
| 4. | Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag |
'' |
2.850 |
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2005. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 5/2004 dags. 26. október 2004.
Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.
Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html
Reykjavík, 25. maí 2005.
Ferðakostnaðarnefnd