NOTE: This article is more than 5 years old.
11 janúar 2006
/

Ríkiskassinn.is uppfærður

Fjármálaráðuneytið vill vekja athygli á að Ríkiskassinn.is hefur verið uppfærður.

Meginefni vefsins er uppfært í samræmi við ríkisreikning 2004 en kafli um útgjöld ráðuneyta er uppfærður í samræmi við fjárlög 2006.

Auk þess vill ráðuneytið benda á:


Ríkiskassinn.is veitir yfirsýn yfir meginatriði í ríkisrekstri og efnahagsmálum. Á vefnum er að finna ýmsan fróðleik og yfirlit um ríkisbúskapinn, verkefni ríkisins, tekjur þess, eignir og skuldir.

Allar ábendingar um efni og framsetningu vefsins eru vel þegnar og sendist á vefstjóra ([email protected]).