NOTE: This article is more than 5 years old.
18 maí 2006
/

Aðalskipulag Bláskógabyggðar, Þingvallasveit til ársins 2016 staðfest


Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri, Sigríður Anna Þórðardóttir, Sveinn Sæland oddviti og Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Við undirritun aðalskipulags Bláskógabyggðar

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra staðfesti í gær nýtt aðalskipulag Bláskógabyggðar, Þingvallasveit, frá 2004 til ársins 2016. Leiðarljós sveitarstjórnar við mótun aðalskipulagsins var að vernda lífríki og ásýnd svæðisins en jafnframt, eins og framast var unnt, að gæta sanngirni og jafnræðis gagnvart landeigendum.