NOTE: This article is more than 5 years old.
05 júlí 2006
/

Vefútgáfa Evrópskrar tungumálamöppu, European Language Portfolio

Menntamálaráðuneyti hefur birt vefútgáfu Evrópskrar tungumálamöppu fyrir grunn- og framhaldsskólastig.

Menntamálaráðuneyti hefur birt vefútgáfu Evrópskrar tungumálamöppu, European Language Portfolio, fyrir grunn- og framhaldsskólastig og hefur hún hlotið vottun frá Evrópuráðinu í Strassborg. Efnið var unnið í samvinnu við tilraunaskóla hér á landi og nefnd sérfræðinga um tungumálakennslu á vegum ráðuneytisins. Mappan er í þremur hlutum sem eru tungumálapassi, námsferilskrá og safnmappa.

Ritstjórar eru Aldís Yngvadóttir og Erna Árnadóttir.

Efnið, sem gefið er út á vef, verður vistað á vef menntagáttar og vef Námsgagnastofnunar.