NOTE: This article is more than 5 years old.
24 október 2006
/

Opnun íbúðakjarna fyrir fatlað fólk við Hörðukór 2

Bæjarstjóri, bæjarfulltrúar, íbúar, aðrir góðir gestir.

Mér er það mikið ánægjuefni að fá tækifæri til þess að vera með ykkur hér í dag við opnun þessa glæsilega íbúðakjarna.

Á undanförnum misserum hefur athygli í auknum mæli beinst að aðstæðum og réttindamálum fólks með geðraskanir í samfélaginu.  Sjónir hafa meðal annars beinst að þörfum þess fyrir fjölbreyttari þjónustuúrræði og aukin lífsgæði og áhrifum notenda sjálfra á þá þjónustu sem þeir fá.

Þá vex þeim hugmyndum stöðugt fylgi að færa beri þjónustu við fólk með geðraskanir í ríkari mæli út í samfélagið – frá hefðbundnum sjúkrahúsum – rjúfa einangrun og efla sjálfstæði þess og virkja þá reynslu og þekkingu sem það býr yfir.

Það má fullyrða að búseta á áfangaheimili, í íbúðakjörnum eða þjónustuíbúðum með fjölbreyttri og sveigjanlegri stoðþjónustu getur veitt stöðugleika og öryggi sem stuðlar að jafnvægi í heilsufari og dregur úr líkum á endurinnlögnum á sjúkrahús.

Ennfremur hefur athyglinni verið beint að þörf fyrir aukna samhæfingu og samvinnu þeirra sem annast stefnumótun og þjónustu í þessum efnum.

Á vettvangi Kópavogsbæjar hefur í gegnum tíðina verið ríkur metnaður til þess að búa vel að þjónustu við þá sem búa við fötlun af einhverju tagi.

Þær íbúðir sem hér er verið að taka í notkun bera þessari hugsun fagurt vitni. Frumkvæði Kópavogsbæjar er og hefur verið til eftirbreytni. Bæjarfélagið sýnir þann styrk að láta til sín taka í þjónustu við fatlaða íbúa sveitarfélagsins og í samstarfi við Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi hafa þessir aðilar náð verulegum árangri í þjónustu við þá sem í hlut eiga.

Oft er talað um samstarfsörðugleika milli ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að framkvæmd velferðarverkefna af ýmsu tagi og iðulega er sagt að þessir aðilar keppist við að kasta á milli sín ábyrgðinni.

Þetta á alls ekki við í samstarfi Kópavogsbæjar og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi. Traust og eindrægni hefur einkennt þetta samstarf þar sem góð þjónusta við þá sem búa við fötlun hefur verið í forgrunni og þess gætt að hún sé eins samþætt og skilvirk og nokkur kostur er.

Grunntónninn hefur alltaf verið sá að koma sem best á móts við þarfir þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda og síðan hafa þjónustuaðilarnir, bærinn og Svæðisskrifstofan, deilt með sér ábyrgðinni í bróðerni.

Samstarf um þjónustu við þá sem hér munu búa er áþreifanlegur vitnisburður um þetta góða samstarf.

Í þessu sambandi ber einnig að geta þess að sú hugmyndafræði sem hér er lögð til grundvallar er í beinu samhengi við þær áherslur sem félagsmálaráðuneytið hefur lagt til í stefnumótun sinni í málefnum geðfatlaðra og ég kynnti nýlega. Þar kynnti ég metnaðarfulla áætlun sem hefur það að markmiði að slá nýjan tón í þjónustu við þá sem búa við geðfötlun. Áætlun þessi tekur til næstu fimm ára og hefur ríkisstjórnin tryggt rekstrar- og stofnfé til verkefnisins. Ég vænti góðs af frekara samstarfi félagsmálaráðuneytisins og Kópavogsbæjar um framkvæmd þessa verkefnis, geðfötluðu fólki og aðstandendum þess til hagsbóta.

Ég óska þeim sem hér munu eignast nýtt heimili innilega til hamingju með daginn og einnig okkur hinum, því hér eru stigin spor í þjónustu við fatlaða sem leiða okkur inn í nýja tíma.

Takk fyrir.