NOTE: This article is more than 5 years old.
25 október 2006
/

Ávarp við afhendingu jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisráðs 2006

Ágætu samherjar.

Kynbundinn launamunur og launajafnrétti hafa lengi verið í umræðunni og stjórnvöld staðið að ýmsum verkefnum. Ég veit að þið eruð mér sammála um að baráttan gegn kynbundnum launamun eigi að vera forgangsmál og að því verði að vinna með markvissum og skipulögðum hætti.

Þess vegna finnst mér vel við hæfi að sá aðili er hlýtur hér jafnréttisviðurkenningu í dag hafi leitað markvissra leiða til að koma í veg fyrir kynbundinn launamun innan fyrirtækisins.

Þarna hefur fyrirtæki sýnt frumkvæði við að greina launakerfi sitt og fylgt jafnlaunastefnu eftir, og leitað samráðs við fulltrúa starfsmanna sem eflaust hefur vakið menn til umhugsunar og vonandi um leið haft jákvæði áhrif í átt að launajafnrétti.

Þetta er einmitt það sem ég tel skipta máli í baráttunni gegn kynbundnum launamun á íslenskum vinnumarkaði.

Án þess að ég vilji skorast undan ábyrgð í þessum efnum þá er ljóst að ábyrgðin liggur fyrst og fremst hjá þeim sem taka launaákvarðanir, hvort sem er á almennum vinnumarkaði eða hjá hinu opinbera.

Það að stjórnendur séu meðvitaðir um hvaða viðmið eru lögð til grundvallar launaákvörðunum þeirra innan fyrirtækja eða stofnana er lykilatriði í því koma í veg fyrir kynbundinn launamun. Þeir sem taka ákvarðanir um laun þurfa að tryggja að sömu viðmið liggi að baki ákvörðunum þeirra um laun kvenna og karla eins og jafnréttislögin kveða á um. Þetta hljómar ekki flókið en virðist þó hafa vafist fyrir mörgum stjórnandanum ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar sem félagsmálaráðuneytið lét vinna og fékk í hendur í síðustu viku.

Það er því einkar ánægjulegt að fá tækifæri til að afhenda hina árlegu jafnréttisviðurkenningu árið 2006 til Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis. Ég treysti því að þessi viðurkenning muni reynast öðrum fyrirtækjum og stofnunum hvatning til frekari dáða við að færa okkur nær markmiði okkar um launajafnrétti kvenna og karla á íslenskum vinnumarkaði.

Gjörðu svo vel og gangi ykkur áfram vel á þessari braut.