NOTE: This article is more than 5 years old.
17 nóvember 2006
/

Borgin gegn landinu - keppendur eða samherjar


Ráðherra ásamt fulltrúum á ráðstefnunni Borgin gegn landinu
Ráðherra ásamt fulltrúum á ráðstefnunni Borgin gegn landinu

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra setti ráðstefnuna Borgin gegn landinu - keppendur eða samherjar á Nordica Hotel með ávarpi um að tímabært væri að líta til styrkleika sveitarfélaganna fremur en veikleika. „Við verðum að beina sjónum okkar í auknum mæli að þeim fjölmörgu öflugu sveitarfélögum sem geta og vilja taka við fleiri verkefnum frá ríkinu“, sagði Magnús og enn fremur: „Það er trú mín að hagsmunir Reykjavíkur eigi fulla samleið með hagsmunum annarra sveitarfélaga og öfugt.“

Tenging frá vef ráðuneytisinsÁvarp félagsmálaráðherra á ráðstefnunni Borgin gegn landinu