NOTE: This article is more than 5 years old.
20 mars 2007
/

Ný skammtímavistun fyrir fötluð börn og ungmenni á Suðurnesjum

Góðir gestir.

Mér er það fagnaðarefni að fá tækifæri til þess að taka þátt í þeirri ánægjustund sem við eigum nú hér í Heiðarholtinu við formlega opnun nýrrar skammtímavistunar á Suðurnesjum. Hér erum við stödd í glæsilegu húsnæði og það hefur augljóslega verið vandað vel til verka og búnaður og tæki eru eins og best verður á kosið.

Tilkoma þessa nýja húsnæðis og gjörbreytt aðstaða hentar mun betur fyrir þá þjónustu sem veitt er í skammtímavistun og eykur möguleika á að mæta ólíkum þjónustuþörfum. Hingað hefur nú verið flutt sú skammtímaþjónusta sem áður var í Lyngseli í Sandgerði og aukið duglega við hana. Það er mér því mikið ánægjuefni að geta lýst því yfir að frá og með næstu mánaðamótum verður hér í boði skammtímaþjónusta allan sólarhringinn, allt árið. Það er vissulega mikilsverð lyftistöng og stórt skref fram á við í þjónustu við fatlaða á Suðurnesjum. Framboð á þjónustu mun við þetta aukast úr eitt þúsund dvalarsólarhringum á ári, í um það bil sextán hundruð og fimmtíu sem er 65% aukning.

Byltingarkenndar breytingar

Skammtímaþjónusta af því tagi sem fram fer hér í Heiðarholti var fyrst kynnt til sögunnar hérlendis í lögum um aðstoð við þroskahefta sem tóku gildi í ársbyrjun 1980. Hún er því rúmlega aldarfjórðungs gömul. Óhætt er að fullyrða að þessi þjónusta hafi fallið í frjóan jarðveg því hún hefur verið fjölskyldum fatlaðra barna og ungmenna – og reyndar fullorðinna líka – afar mikilvæg stoð allar götur síðan. Markmið hennar er að með tímabundinni dvöl sé álagi létt af fjölskyldunum og þeim börnum og ungmennum sem í hlut eiga veitt tilbreyting frá daglegu lífi. Þetta var hluti af þeim mörgu nýmælum sem lög um aðstoð við þroskahefta fólu í sér og var ætlað að styðja við þá stefnu að þeir sem búa við fötlun geti dvalið í foreldrahúsum á uppvaxtarárum sínum í stað þess að vera vistaðir á stofnun eins og reyndin var einatt fyrir setningu laganna. Skammtímaþjónustan er því ein af þeim mikilvægu stoðum í þjónustu við fatlaða sem hafa gert það að verkum að líkja má breytingum á þessu sviði undangenginn aldarfjórðung við byltingu.

Máttarstólpi í þjónustu við fatlaða

En það voru ekki einungis ný lög sem komu þessari byltingu af stað. Hún er einnig verk margra framsýnna og fórnfúsra manna og kvenna sem börðust fyrir nýjum viðhorfum og bættri þjónustu og lögðu sitt af mörkum til þess að koma þeirri þjónustu á laggirnar. Í því sambandi er vert að nefna Þroskahjálp á Suðurnesjum sem snemma lét sig varða málefni þeirra sem búa við fötlun og fagnar raunar 30 ára afmæli á þessu ári. Þetta félag var og er einn af máttarstólpum Landssamtakanna Þroskahjálpar sem segja má að hafi með ötulli baráttu sinni lagt grunninn að setningu laga um aðstoð við þroskahefta á sínum tíma. Ekki nóg með það: Þroskahjálp á Suðurnesjum hefur um langt árabil einnig verið máttarstólpi í þjónustu við fatlaða hér á svæðinu, rekið dagvist og leikfangasafn og staðið fyrir sjúkraþjálfun svo fátt eitt sé nefnt um starfsemi félagsins. Fyrir það er vert að þakka.

Starfsemi Þroskahjálpar á Suðurnesjum hefur farið fram í góðri samvinnu við Svæðisskrifstofu Reykjaness. Starfsfólk hennar hefur fyrr og síðar sýnt metnað og dugnað svo eftir hefur verið tekið, meðal annars unnið til verðlauna á landsvísu fyrir fyrirmyndarrekstur og gæðaþjónustu. Ég er þess því fullviss að sú starfsemi sem fara mun fram hér í Heiðarholti hvílir á traustum grunni og er í góðum höndum.

Þá er vert að þakka fyrir gott og farsælt samstarf félagsmálaráðuneytisins við sveitarfélögin hér á Suðurnesjum; ráðuneytið hefur ávallt getað treyst á þau sem öfluga samherja til þess að bæta þjónustu við þá sem búa við fötlun.

Ný stefna í málefnum fatlaðra

Sú aukning skammtímaþjónustu sem nú fer í hönd hér á Suðurnesjum er í fullu samræmi við nýja stefnu félagsmálaráðuneytisins í málefnum fatlaðra barna og fullorðinna sem unnið hefur verið að undanfarin misseri og er nú á lokastigi. Þar segir að skammtímaþjónusta skuli verða rýmri kostur en verið hefur. Hér er stigið skref í þá átt.

Að svo mæltu vil ég þakka öllum þeim sem hafa átt hlut að máli við að koma þessari nýju skammtímavistun hér í Heiðarholtinu á laggirnar, þeir eru fleiri en svo að ég nefni þá alla. Ég vil þó nefna þá sem stundum gleymast í upptalningunni: Iðnaðarmennina sem hafa lagt alúð og vandvirkni í vinnubrögð sín við þetta verk eins og glöggt má sjá af öllum frágangi og prýða þetta fallega hús.

Þakka ykkur fyrir og til hamingju með daginn.