NOTE: This article is more than 5 years old.
27 mars 2007
/

Ráðstefna á Ísafirði um móttöku innflytjenda

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti.

Eru innflytjendur hvalreki eða ógn við samfélögin á landsbyggðinni?

Í logni við ókunna strönd var yfirskrift ræðu sem Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra flutti í dag á ráðstefnu á Ísafirði um þátttöku og móttöku innflytjenda í dreifbýli. Ráðstefnan stendur til miðvikudags og þar er spurt: Eru innflytjendur hvalreki eða ógn fyrir samfélögin á landsbyggðinni? Í ræðu sinni sagði sjávarútvegsráðherra m.a. að Íslendingar eigi að vera mun betur í stakk búnir en margar aðrar þjóðir að taka vel á móti fólki frá öðrum löndum. „Fólki sem kemur hingað til að vinna með okkur, halda hagkerfinu gangandi með okkur, hraða framþróun okkar – og fólki sem auðgar menningu okkar og mannlíf svo um munar. Við hljótum að fagna komu þess og leggja okkur fram um að standa vel að móttöku þess, hvort sem það kemur til lengri eða skemmri dvalar. Það er hagur okkar allra.“

Þá fór Einar Kristinn yfir hvað felst í því að taka vel á móti fólki frá öðrum löndum og nefndi að sérstaklega þurfi að huga að upplýsingagjöf, túlkaþjónustu, vinnumarkaðsmálum, auknum rannsóknum á högum innflytjenda og síðast en ekki síst íslenskukennslunni eins og starfstengd íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn í fiskvinnslu á Íslandi beri með sér. Jafnframt þurfi að gera ákveðnar kröfur til innflytjenda, sem feli m.a. í sér að gefa ekki eftir grundvallaratriði vestrænna lýðræðissamfélaga, um lýðræði, mannréttindi, jafnræði kynjanna, frjálslyndi og önnur slík vestræn lífsgildi.

            Að lokum vitnaði ráðherra til vesturferða Íslendinga á sínum tíma og í ljóð Svanborgar Pétursdóttur frá Skáleyjum sem orti svo þegar hún flutti:

 

Ég spyr, hvort við ævinnar enda

örlögin rétti mér hönd.

Og hvort að mér lánist að lenda

í logni við ókunna strönd.

 

Ræðan var flutt á ensku en einnig dreift til ráðstefnugesta á íslensku og pólsku. Það eru Fjölmenningarsetrið á Ísafirði og Háskólasetur Vestfjarða sem efna til ráðstefnunnar.

 

Ræða ráðherra á íslensku

Ræða ráðherra á ensku

Ræða ráðherra á pólsku

 

 

Sjávarútvegsráðuneytinu 26. mars 2007