NOTE: This article is more than 5 years old.
15 maí 2007
/

Mótum framtíð - stefnur og straumar í félagslegri þjónustu


Mótum framtíð - Auglýsing
Mótum framtíð - Auglýsing

Félagsmálaráðuneytið stóð fyrir ráðstefnu á Nordica hótel dagana 29. og 30. mars 2007 í samvinnu við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar, Rannsóknarsetur í barna- og fjölskylduvernd við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands, Rauða kross Íslands, Ís-Forsa og fjölmarga hagsmunaaðila sem láta sig varða félagslega þjónustu.

Á ráðstefnunni var sjónum meðal annars beint að samþættingu félagslegrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Kynnt voru viðhorf ríkis, sveitarfélaga og hagsmunasamtaka til framtíðarmarkmiða og skipan þjónustunnar. Kynnt voru fjölmörg verkefni sem unnið er að og reynst hafa vel í framkvæmd félagslegrar þjónustu á Íslandi. Ný stefna ráðuneytisins í málefnum fatlaðra barna og fullorðinna var kynnt og þróun aukinnar þjónustu við geðfatlað fólk.

Þá vöktu athygli fyrirlestrar frá Norðurlöndunum þar sem fjölmargar nýjungar voru kynntar.

Þeim sem þess óskuðu stóð til boða að efna til kynninga á nýjum verkefnum og viðfangsefnum í forsal aðalráðstefnusalar hótelsins með veggspjöldum og öðrum hætti.

Ráðstefnan var opin öllum, lærðum sem leikum, sem láta sig varða félagslega þjónustu og er aðgangur ókeypis.

Markmið með ráðstefnunni var að koma á framfæri því sem efst er á baugi og nýstárlegast í félagslegri þjónustu á Íslandi og öðrum ríkjum Norðurlanda. Í hléum var kraftmikil tónlist í boði og aðrir listrænir viðburðir.

Að lokinni dagskrá var móttaka í boði Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra.

Dagskrá

Skjal fyrir Acrobat ReaderMótum framtíð - Dagskrá

 

Erindi


Andrés Ragnarsson, stjórnarformaður Sjónarhóls
Hlutverk og starfsemi Sjónarhóls - ráðgjafarmiðstöðvar.

Anna Lilja Magnúsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi hjá Styrktarfélagi vangefinna
Breyttur lífsstíll. Tækifæri fyrir alla.

Atli Freyr Magnússon, atferlisráðgjafi hjá Svæðisskrifstofu Reykjaness
Þróun vinnureglna varðandi þvingun og valdbeitingu hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi.

Einar Njálsson, verkefnisstjóri framkvæmdaáætlunarinnar
Framvinda framkvæmdaáætlunar í málefnum geðfatlaðs fólks 2006-2010.

Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðuiðjuþjálfi á Landspítala - háskólasjúkrahúsi
Þjónusta við geðfatlað fólk - ný viðhorf, nýjar leiðir, kynning á rannsóknarniðurstöðum.

Erla Björg Sigurðardóttir, félagsráðgjafi MA, Verkefnisstjóri Grettistaks í Reykjavík
Grettistak - á vegum Reykjavíkurborgar.

Garðar Jónsson, framkvæmdastjóri Glax - Viðskiptaráðgjafar
Rafrænt upplýsingakerfi - ný tækifæri í áætlanagerð.

Gerður A. Árnadóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Hlutverk hagsmunasamtaka í ljósi framtíðar.

Guðberg K. Jónsson, sálfræðingur, Rannsóknastofu um mannlegt atferli við HÍ og Páll Biering, geðhjúkrunarfræðingur, Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði við HÍ
Að meta árangur í velferðarþjónustu.

Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur, forstöðum. Vinjar, athvarfs geðfatlaðra
Hvað er Rauði krossinn að gera í málefnum geðfatlaðra?

Guðrún Reykdal, félagsráðgjafi, framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands
Þróun gæðamats í félagslegri þjónustu í Reykjavík.

Guðrún Sigurjónsdóttir, verkefnisstjóri hjá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu
Samþætting heilbrigðisþjónustu við skólakerfi og félagslega þjónustu.

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
Samþætting félagslegrar þjónustu.

Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands
Gildi félagslegra sjónarhorna og hugtaka í félagslegri þjónustu.

Héðinn Unnsteinsson, fyrrverandi starfsmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
Ný viðhorf og nýjar leiðir í málefnum geðfatlaðs fólks í ljósi þjóðfélagsbreytinga.

Hrönn Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi og fötlunarfræðingur
Lífsstíll og heilsufar kvenna með þroskahömlun.

Karólína Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri félagsþjónustu hjá fjölskyldudeild Akureyrarbæjar
Samþætting ráðgjafarþjónustu við fatlað fólk og annarrar ráðgjafarþjónustu.

Kristín Júlía Sigurjónsdóttir, þroskaþjálfi, trúnaðarmaður fatlaðra í Reykjavík/Reykjanesi
Kynning á störfum trúnaðarmanns fatlaðra í Reykjavík og á Reykjanesi.

Laufey Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Vestfjarða
Fötluð börn og barnavernd - könnun á samskiptum þjónustukerfa.

Maren Ó. Sveinbjörnsdóttir, forstöðumaður málefna fatlaðra á Hornafirði
Kynning á námskeiði fyrir starfsfólk félagsþjónustu Hornafjarðar.

Margrét Margeirsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík
Hlutverk hagsmunasamtaka í ljósi framtíðar.

María Jónsdóttir, félagsráðgjafi hjá Styrktarfélagi vangefinna
Kynfræðsla en ekki kynhræðsla.

María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar
Þróun samhæfðs árangursmats í félagslegri þjónustu í Reykjavík.

Sandra D. Gunnarsdóttir, sviðsstjóri mannauðs og rekstrar, Svæðisskrifstofu Suðurlands
Stefna í mannauðsmálum Svæðisskrifstofu Suðurlands.

Sigríður Jónsdóttir, skrifstofustjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
Er samþætting félagslegrar þjónustu raunverulegur kostur?

Sigurveig H. Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf, Háskóla Íslands
Rannsóknir á málefnum aldraðra.

Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Austurlands
Kynning á verkefni um samstarf Íslands við Grænland, Færeyjar og Norður-Noreg.

Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands
Mikilvægi samfélagslegrar ábyrgðar.

Þór G. Þórarinsson, skrifstofustjóri fjölskylduskrifstofu félagsmálaráðuneytisins
Samþætting þjónustu við fötluð börn og fullorðna - nýir tímar, ný sýn.

Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr
Samfélagslegt hlutverk og ábyrgð íslenskra fyrirtækja.