NOTE: This article is more than 5 years old.
04 júlí 2007
/
Umhverfisráðherra heimsækir Samband íslenskra sveitarfélaga

Í dag heimsótti Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga. Þar ræddi hún við helstu stjórnendur sambandsins, þ.á.m. framkvæmdastjórann Þórð Skúlason, og heilsaði upp á starfsfólk þess. Ýmis mál bar á góma sem varða samskipti sambandsins og ráðuneytisins, svo sem skipulags- og mannvirkjamál, EES, skógrækt, fráveitumál og sorphirða.