NOTE: This article is more than 5 years old.
03 september 2007
/

Veiting styrkja í tilefni af Evrópuári jafnra tækifæra

Ágætu gestir.

Félagsmálaráðuneytið er fullur þátttakandi í Evrópuári jafnra tækifæra árið 2007 og af því tilefni hafa fjölmargir viðburðir verið skipulagðir.

Evrópuár jafnra tækifæra er átaksverkefni sem nær til allra aðildarríkja Evrópusambandsins og EES-ríkja. Verkefnið byggir á því að unnið verði markvisst og með sýnilegum hætti gegn hvers konar mismunun og undirstrikað er að öllum beri að njóta jafnra tækifæra í lífinu. Einblínt er á kosti fjölbreytileikans og þann mikla hag sem samfélagið hefur af því að allir fái að njóta sín á eigin forsendum. Á árinu er undirstrikað að mismunun er ekki aðeins röng og ólögleg heldur jafnframt sóun á hæfileikum og mannauði.

Löggjafavaldið hefur í gegnum tíðina unnið að því að þróa ákvæði í stjórnarskrám og almennri löggjöf þar sem kveðið er á um að hvers konar mismunun sé ólögleg en það virðist því miður ekki nægja til þess að koma í veg fyrir hana. Samkvæmt könnunum sem gerðar hafa verið í löndum Evrópusambandsins telja allt að 64% aðspurðra að það sé algengt að einstaklingum sé mismunað sökum kynþáttar og 53% aðspurðra að það sé algengt að einstaklingum sé mismunað vegna fötlunar. Þetta eru ógnvekjandi tölur og sýna því miður að átaks er þörf.

Í félagsmálaráðuneytinu fjöllum við dag hvern um það hvernig þjóna megi þörfum mismunandi hópa í samfélaginu. Við sjáum að fólk býr við mismunandi aðstæður af ýmsum ástæðum og okkur stjórnmálamönnunum ber að leita lausna fyrir þá sem minna mega sín. Það hlýtur á hverjum tíma að vera megintilgangur hvers samfélags að hlúa vel að þegnum þess. Ég spyr mig oft að því hvort nokkurt verkefni stjórnvalda sé mikilvægara en einmitt það. Ég fæ ekki séð að svo sé.

Margt er vissulega vel gert nú þegar en ég tel að við getum gert mun betur. Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hefur sett sér skýr markmið á mörgum sviðum og þau lúta ekki síst að því að efla velferðarþjónustuna, jafnræði og tryggja jöfn tækifæri óháð kyni, búsetu, uppruna og félagslegri stöðu. Málefni yngstu og elstu kynslóðanna eru forgangsmál ríkisstjórnarinnar og hún mun leggja áherslu á að auka jöfnuð með því að bæta kjör þeirra hópa sem standa höllum fæti. Við eigum að nýta þá hagsæld sem við höfum búið við og góð ytri skilyrði til þess að bæta stöðu þeirra. Okkur ber að gera það.

Evrópuár jafnra tækifæra tengist mjög vel markmiðum ríkisstjórnarinnar og við tökum eins og ég sagði hér fyrr fullan þátt í því. Fjölda verkefna og rannsókna hefur verið hleypt af stokkunum. Sem dæmi má nefna útgáfu trúardagatals sem verður dreift í skóla, á heilsugæslustöðvar og fleiri staði, ljósmyndasamkeppni og ráðstefnu um kynbundið ofbeldi sem haldin var í gær.

Fyrr í sumar auglýsti félagsmálaráðuneytið styrki til verkefna sem leiddu til almennrar vitundarvakningar um að einstaklingar óháð kynþætti, trú, fötlun, aldri, kynhneigð eða kyni eigi rétt á jöfnum tækifærum í samfélaginu. Styrkveitingarnar eru liður í verkefnum Evrópuársins.

Þau verkefni sem hljóta styrk núna eiga það öll sameiginlegt að leiða til almennra vitundarvakningar í samfélaginu gegn hvers konar mismunun. Verkefnin eru fjölbreytt og spanna ýmis svið, má þar nefna til dæmis leikrit á vegum Halaleikhópsins, málstofu um réttindi transgender-einstaklinga, gerð kvikmyndar og veggspjaldaherferð. Öll þessi verkefni eru unnin á vegum félagasamtaka en í þeim býr mikill kraftur, þekking og reynsla sem stjórnvöld á hverjum tíma eiga að nýta samfélaginu til góðs. Verkefnin verða kynnt af félagasamtökunum hér á eftir og mun Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, halda utan um þá kynningu.

Alls hljóta tíu verkefni styrk og þau eru sem hér segir:

  • Mannréttindaskrifstofa Íslands hlýtur styrk að fjárhæð 450 þúsund krónur vegna málstofu um mannréttindi aldraðra á Íslandi, málstofu um mannréttindi transgender-einstaklinga, fræðslu gegn misrétti og veggspjaldaherferð gegn mismunun.
  • Halaleikhópurinn hlýtur styrk að fjárhæð 200 þúsund krónur til uppsetningar á leikritinu Gaukshreiðrinu.
  • Kvennaathvarfið hlýtur styrki að fjárhæð 450 þúsund krónur til kynningarherferðar á vegum Kvennaathvarfsins og gerð kynningarmyndbands um Kvennaathvarfið.
  • Ísland Panorama hlýtur 150 þúsund krónur til verkefnisins „Innst við beinið erum við öll eins“.
  • Femínistafélag Íslands hlýtur 250 þúsund króna styrk til verkefnisins „Samræða um margbreytileikann“.
  • Loks hljóta Barnaheill og Háskólinn á Akureyri hæsta einstaka styrkinn að fjárhæð hálf milljón króna til verkefnisins „Gegn mismunun á öllum skólastigum“.

Ég óska styrkþegum innilega til hamingju og er sannfærð um að þessi verkefni munu öll hafa mikilvæg áhrif víða í samfélaginu. Þau undirstrika líka þann mikla kraft sem í ykkur býr og ég veit að mörg ykkar eruð að vinna mikið hugsjónastarf sem margir njóta enda þótt það sé missýnilegt frá degi til dags.

Ég vil biðja alla styrkþega að rísa úr sætum og legg til að við gefum þessu heiðursfólki gott klapp.

Ingibjörg Broddadóttir tekur nú við kynningu styrkþega á verkefnunum.