NOTE: This article is more than 5 years old.
23 nóvember 2007
/
Tvísköttunarsamningur Íslands og Indlands undirritaður

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 27/2007
Í dag var undirritaður í Nýju Delhí samningur milli Íslands og Indlands til að koma í veg fyrir tvísköttun. Af hálfu Íslands undirritaði Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, samninginn en fyrir hönd Indlands, P. Chidambaram, fjármálaráðherra.
Samningurinn nær til tekjuskatta. Helstu efnisatriði samningsins eru þau að samið er um 10% afdráttarskatt af arði, vöxtum og þóknunum. Jafnframt er í samningnum ákvæði um upplýsingaskipti á milli landanna varðandi þá skatta sem samningurinn nær til svo og ákvæði um aðstoð við innheimtu skatta.

Árni M. Mathiesen og P. Chidambaram
skrifa undir tvísköttunarsamning Íslands og Indlands

Fjármálaráðuneytinu 23. nóvember 2007